Utan vallar: Er Ólafur okkar gæfu smiður? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. júní 2011 06:00 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari.
Þegar Ísland situr á botni síns riðils með eitt stig af fimmtán mögulegum og með landsliðsþjálfara sem hefur unnið einn mótsleik af fimmtán síðan hann tók við, er eðlilegt að spyrja hvort hann sé rétti maðurinn til að finna lausnir á þeim erfiðleikum sem steðja að liðinu. Það var þess vegna sem ég spurði Ólaf Jóhannesson landsliðsþjálfara einmitt að því eftir tapleikinn gegn Dönum á laugardaginn. „Ja, nú segi ég eins og góður maður sagði – nú ertu farinn að tala um eitthvað annað en fótbolta og því get ég ekki svarað,“ var svarið sem ég fékk. Frekari útskýringar gaf hann ekki á því. Hann stóð upp og gekk út af blaðamannafundinum. Þrátt fyrir svar Ólafs snerist spurningin vitaskuld fyrst og síðast um fótbolta. Viðbrögðin lýsa manni sem átti engar skýringar á reiðum höndum. Menn eru dæmdir af árangri sínum og árangurinn talar sínu máli. Það er hins vegar ekki úr vegi að ræða um þetta í réttu samhengi. Liðið hefur verið að spila ágætlega, hefur alls ekki lagt það í vana sinn að tapa stórt en sem fyrr vantar ákefð, bit og drifkraftinn til að reka smiðshöggið á sóknirnar. Við þurfum mann sem getur kallað fram þann þátt í leik íslenska liðsins. Ólafur er nú á sínu fjórða starfsári og hefur ekki tekist það. Því þurfa þeir sem völdin hafa að taka ákvörðun um framhaldið – hvort það sé rétt að halda tryggð við þann þjálfara. Sama hvaða skoðun menn kunni að hafa á landsliðinu – ekki er hægt að þræta fyrir eitt. Að það hafi verið á þriðja þúsund auð sæti á landsleik gegn Danmörku hlýtur að vera stórkostlegt áhyggjuefni fyrir KSÍ. Stemningin á leiknum var sorglega léleg og svo virðist sem áhugi almennings á landsliðinu sé í algeru lágmarki. Fram undan eru gríðarlega spennandi tímar í íslenskri knattspyrnu og Evrópumeistaramót U-21 landsliðsins handan við hornið. Þjálfari A-landsliðsins er að taka við einhverjum besta hópi ungra íslenskra knattspyrnumanna sem þjóðin hefur séð og ábyrgðin er mikil. Ef allt er með felldu innan raða Knattspyrnusambandsins verður að setja málefni A-landsliðsins í naflaskoðun. Fyrsta mál á dagskrá á að vera hvort rétt sé að treysta núverandi þjálfara fyrir því verkefni. Sú spurning hlýtur að eiga rétt á sér og væri það stórkostlegt ábyrgðarleysi af hálfu forystu KSÍ að taka þessi mál ekki í allsherjar endurskoðun.
Mest lesið Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Fleiri fréttir Sancho tryggði Aston Villa áfram í Evrópudeildinni Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Fimm daga fangelsi fyrir að klæðast Borat skýlu á Meistaradeildarleik Sigurður Bjartur á leið til Spánar? „Lagar lekann í smástund en þetta er ekki Liverpool-leiðin“ Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Stjarnan selur Adolf Daða til FH Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Sjálfsmark endaði sigurgönguna og dramatík í Aserbaísjan Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Íslensku landsliðskonurnar spila á heimavelli Nottingham Forest Frakkar munu að svo stöddu ekki sniðganga HM vegna Grænlands Telur starf Guardiola í hættu: „Hélt ég myndi aldrei á minni lífsleið segja þetta“ Óttast að Grealish verði lengi frá Feginn Frank fékk sér tvö stór rauðvínsglös Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Tvenna Jesus, óvænt töp, veisla í Madríd og langþráður sigur Lærir inn á nýtt umhverfi: „Ég mun gera mörg mistök“ Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Gabriel Jesus stjarna Arsenal í enn einum Meistaradeildarsigrinum City fékk skell í Noregi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu