Gaddafí heitir langvinnum stríðsátökum 21. mars 2011 05:00 Fögnuðu Uppreisnarmenn nærri borginni Benghasi fögnuðu þegar stjórnarherinn hörfaði í kjölfar loftárása Bandaríkjamanna, Frakka og Breta.Nordicphotos/AFP
Loftvarnakerfi Líbíu er sagt illa skaddað eftir loftárásir Bandaríkjanna, Frakklands og Bretlands. Gaddafí segist ekki ætla að víkja og hefur hert á sókn stjórnarhers Líbíu gegn uppreisnarmönnum. Tölur um mannfall eru á reiki. Stríðsátök í Líbíu verða langdregin og blóðug sagði Mohammar Gaddafí, leiðtogi landsins, í símaviðtali við ríkissjónvarp Líbíu. Talið er að loftárásir á laugardag hafi eytt að mestu loftvörnum landsins. Talsmaður Líbíuhers lýsti í gær yfir einhliða vopnahléi. Sambærileg yfirlýsing var sett fram á föstudag en árásir stjórnarhersins á uppreisnarmenn héldu engu að síður áfram. "Við lofum ykkur löngu stríði án nokkurra takmarkana,“ sagði Gaddafí. Hann sagði herafla vesturveldanna engan rétt hafa til að gera árásir í landinu, og líkti þeim sem fyrir árásunum standa við krossfara og hryðjuverkamenn. "Við munum berjast fyrir hverri tommu af landi,“ sagði Gaddafí, en undir símaviðtali við hann sýndi ríkissjónvarp Líbíu mynd af gylltum hnefa með kramið líkan af bandarískri orrustuþotu. Hann sagði árásirnar "greinilegt dæmi um árásargirni nýlendu- og krossferðaríkja sem gæti vel hleypt af stað nýju krossferðastríði“. "Líbíska þjóðin er sameinuð, karlar og konur hafa nú fengið skotvopn og sprengjur. Þið getið ekki gert árás, þið getið ekki stigið fæti á þetta land,“ sagði Gaddafí. "Þið eruð ekki búin undir langt stríð í Líbíu en við erum tilbúin.“ Talsmaður bandarískra stjórnvalda sagði í gær talsverðan árangur hafa náðst með árásum um helgina. Hann sagði loftvarnakerfi landsins verulega laskað, og því hægt að framfylgja flugbanni Sameinuðu þjóðanna yfir landinu. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði árásirnar löglegar, ekki sé hægt að horfa upp á Gaddafí murka lífið úr líbísku þjóðinni. Hann tók þó skýrt fram að ekki stæði til að senda landher til Líbíu. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði árásirnar "nauðsynlegar, löglegar og réttlátar“. Talsvert magn af sinnepsgasiEngar staðfestar fregnir hafa borist af manntjóni í loftárásunum sem beinst hafa að ratsjárstöðvum og öðrum loftvörnum landsins. Líbíska ríkissjónvarpið hélt því í gær fram að 48 hefðu látist og um 150 særst. Þessar tölur hafa ekki verið staðfestar. Gaddafí sagði sjálfur í yfirlýsingu sinni að flestir hinna látnu væru konur, börn og trúarleiðtogar. "Rétt er að taka með nokkrum fyrirvara sumu af því sem sýnt er í líbíska sjónvarpinu,“ sagði George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, í samtali við BBC í gær. Hann sagði hernaðaraðgerðir skipulagðar með það að markmiði að valda óbreyttum borgurum sem minnstu tjóni. Mike Mullen, formaður bandaríska herráðsins, sagði í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina NBC að vitað væri að Gaddafí hefði aðgang að talsverðu magni af sinnepsgasi, sem sé verulegt áhyggjuefni þó ekkert bendi til þess að hann hafi í hyggju að beita efnavopnum í baráttu sinni við uppreisnarmenn í landinu. Í það minnsta 110 Tomahawk-stýriflaugum var skotið af bandarískum og breskum skipum á hernaðarleg skotmörk á borð við loftvarnastöðvar í Líbíu á laugardag. Árásir voru einnig gerðar með bandarískum og frönskum orrustuþotum og sprengjuflugvélum. Loftárásirnar héldu áfram í gær og í það minnsta 70 skriðdrekum, brynvörðum bílum og öðrum farartækjum líbíska hersins var grandað nærri borginni Benghasi, höfuðvígi uppreisnarmanna í Líbíu. Eftir sólsetur í gær hófu loftvarnabyssur í höfuðborginni Trípólí skothríð, en ekki var í gærkvöldi ljóst hvort franskar, breskar eða bandarískar þotur voru þá yfir borginni. Um 100 látnir í BenghasiÞrátt fyrir loftárásir hélt stjórnarher Líbíu áfram árásum á uppreisnarmenn. Talið er að á annað hundrað uppreisnarmanna og óbreyttra borgara hafi látið lífið í Benghasi í sprengjuárásum Líbíuhers á laugardag og sunnudag. Sonur Mohammars Gaddafí lýsti á föstudag yfir einhliða vopnahléi í átökunum við uppreisnarmenn. Lítið mark hefur verið tekið á yfirlýsingu hans, og var hart barist við borgina Benghasi. Skortur á nauðsynjavörum, einkum lyfjum, er farinn að gera vart við sig í borginni.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Fleiri fréttir Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Sjá meira