Ríkin reyndu ekki að semja 2. apríl 2011 09:45 Dómararnir sextán ganga inn í réttarsalinn í gær. Fulltrúar Georgíu og Rússlands fylgdust með.fréttablaðið/ap
Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur vísað frá máli Georgíu gegn Rússlandi vegna þjóðernishreinsana í tveimur héruðum Georgíu, Abkasíu og Suður-Ossetíu. Meirihluti dómara taldi að dómstóllinn hefði ekki lögsögu í málinu vegna þess að ríkin tvö hefðu ekki reynt að semja í deilunni áður en farið var með hana fyrir dómstóla. Georgíustjórn lagði fram kvörtun undir lok fimm daga stríðsátaka árið 2008 og hélt því fram að rússnesk yfirvöld og sveitir málaliða hefðu á tveimur áratugum myrt þúsundir Georgíumanna í héruðunum tveimur og hrakið um þrjú hundruð þúsund þeirra á flótta. Stríðið hófst 7. ágúst 2008 og því lauk með vopnahléi 12. ágúst. Rússar hafa einir ríkja viðurkennt sjálfstæði héraðanna tveggja. Fulltrúi Georgíustjórnar sagðist vonsvikinn vegna frávísunarinnar og útilokaði ekki að nýtt mál yrði höfðað seinna. Utanríkisráðherra Rússlands var hins vegar ánægður og sagði niðurstöðuna í samræmi við málflutning Rússa. Málinu er því lokið á vettvangi Alþjóðadómstólsins en hjá Alþjóðaglæpadómstólnum er verið að rannsaka bæði ríkin vegna gruns um stríðsglæpi í fimm daga stríðinu. - þeb
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Sjá meira