Út að djamma eftir skírn 16. apríl 2011 11:00 Friðrik krónprins og Mary Donaldson skírðu tvíburana sína Jósefínu og Vincent en fyrir eiga þau Ísabellu og Kristján.NordicPhotos/Getty
Svo virðist sem djammmyndir af Friðriki krónprins hafi verið blásnar upp af dönskum fjölmiðlum. Því var haldið fram að Friðrik hefði sýnt óþekktri blondínu sérstök vinahót á skemmtistaðnum Simon undir taktföstum takti lagsins Rhythm of the Night. Allt virðist hins vegar vera fallið í ljúfa löð hjá konungsfjölskyldunni ef marka má samheldnina í kringum skírnina á fimmtudag því öll fóru þau út að skemmta sér um kvöldið. Danska þjóðin beið spennt eftir að heyra hvaða nöfn yrðu fyrir valinu þegar tvíburarnir voru færðir til skírnar. Jósefína og Vincent urðu fyrir valinu en danskir blaðamenn vildu endilega fá að vita hver væri sagan á bak við Vincent, það virtist í það minnsta koma flestum á óvart. „Vincent er mjög sterkt nafn og þýðir sá sigursæli," sagði Friðrik við blaðamannastóðið sem beið spennt yfir hinum stolta ríkiserfingja. Eftir hefðbundin veisluhöld, kökur og kaffi, var farið að húma að kveldi og konungshersingin vildi endilega gera sér glaðan dag. Þrír stórir og svartir bílar voru því keyrðir upp að Amalíuborg og aðalsfólkið keyrt niður á skemmtistaðinn Simon. Með í för voru meðal annars faðir Mary og stjúpmamma hennar, bróðir Friðriks, Jóakim, og nánir vinir hjónanna. - fgg
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Sjá meira