Byrjað að troða snjó í Bláfjöllum 2. desember 2011 12:42
Verið er að opna skíðasvæði landsins eitt af öðru eftir rausnarlega snjókomu upp á síðkastið. Í Oddsskarði vantar peninga, en ekki snjó, og verður ekki opnað þar að sinni. Skíðasvæðið á Dalvík verður opnað í dag, en fyrst um sinn verður aðeins neðri lyftan opin. Verulega hefur bætt í snjó í Böggvisstaðafjalli síðustu daga og þar er einnig snjóframleiðsla í gangi. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, ofan við Akureyri verður opnað í fyramálið. Þar verða allar brautir og lyftur opnaðar nema stromplyftan svonefnda, þar sem ekki er enn nægulegur snjór þar efra. Opnunin núna er um hálfum mánuði síðar en í fyrra. Þá hefur snjó kyngt niður í Bláfjöllum. Þar er farið að troða snjó og íta frá girðingum. Búið er að opna nokkrar gönguleiðir, en óvíst er hvenær hægt verður að opna lyftur, því snjó skortir efst í brekkurnar og engin snjóframleiðslutæki eru í Bláfjöllum. Þess í stað er verið að ýta snjónum upp, sem er tímafrekt verk. Búið er að opna göngubrautir á skíðasvæðinu á Seljalandsdal við Ísafjörð. Þar styttist í að lyfturnar verði líka opnaðar. Skíðasvæðið á Siglufirði verður opnað á morgun þegar tvær lyftur af þremur verða ræstar. Austfirðingar verða hinsvegar að bíða eitthvað með skíðaiðkun í vetur, því sveitarfélagið Fjarðabyggð ákvað að leggja ekki í neinn kostnað við að opna skíðasvæðið í Oddsskarði fyrir áramót, í sparnaðarskyni.Uppfært: 14:15: Ingibjörgu Ólafsdóttur upplýsingafulltrúa Fjarðarbyggðar, vill koma því á framfæri að reynt verði að opna skíðasvæðið í Oddskarði þriðja í jólum. Hún segir að enn vanti 20 til 30 sentimetra þykkt lag af snjó þar til hægt verði að skíða á svæðinu. Verið er að vinna að undirbúningi og er maður í fullri vinnu hjá sveitarfélaginu að troða brekkurnar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira