Erlendir fjársvikarar hafa fé af Íslendingum 2. desember 2011 11:53
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill vara fólk við tilraunum til fjársvika þar sem erlendir aðilar reyna með fjölbreyttum hætti að blekkja fólk hér á landi í því skyni að hafa af því fé. Lögreglu berast reglulega kærur þar sem óprúttnum aðilum hefur tekið að fá fólk til þess að senda peninga á milli landa á grundvelli ýmissa viðskipta sem síðar reynast blekking. Lögreglan segir að það sem atvikin eigi sameiginlegt í flestum tilvikum sé að það er óskað eftir því að peningarnir séu sendir á mili landa í gegnum Western Union, MoneyGram eða sambærileg peningaflutningafyrirtæki. Sjaldnast sé beðið um venjulegar bankamillifærslur SWIFT eins og tryggast sé að haga slíkum peningaflutningi. Lögreglu hefur einnig borist ábendngar frá erlendum lögregluliðum um vaxandi fjölda fjársvika í Vestur-Evrópu sem kölluð eru „Spanish Lottery Fraud" en þau ganga út á það að fólk fær send bréf frá Spáni með tilkynningu um að það hafi unnið í happdrætti og gefin eru upp símanúmer og tölvupóstföng til þess að nálgast vinninginn. „Eru þetta svik náskyld þeim svikum sem kölluð hafa verið „Nígeríusvindl" hér á landi. Er fólki eindregið ráðið frá því að svara slíkum tilkynningum og alls ekki að freista þess að senda peninga á milli landa í því skyni að liðka fyrir að fá slíkan „vinning" greiddan út," segir í tilkynningu frá lögreglu.Þau tilvik sem algengast er að berist á borð lögreglu eru:Ýmiss þjónusta s.s. gisting og ferðatengd starfsemi þar sem er pantað og greitt fyrirfram með þeim hætti að gefa upp greiðslukortanúmer. Stuttu síðar er síðan hætt við pöntunina en söluaðilanum boðið að halda eftir hluta greiðslu en senda restina til kaupanda í gegnum peningaflutningaþjónustu. Líklegast um að ræða stolið greiðslukortanúmer og færslan verður þá síðar bakfærð að öllu leyti þar sem tjónið lendir á seljanda þjónustunnar.Kauptilboð í ýmsa muni sem auglýstir eru á smáauglýsingavefum landsmanna og skiptir þar engu hvort auglýstir eru hestar, bílar, húsgögn, bækur eða þjónusta. Kaupandi getur virst hafa þekkingu og áhuga á því sem hann er að kaupa en þegar kemur til greiðslu þá er oftast sendur falsaður erlendur tékki sem hljóðar upp á mun hærri fjárhæð en umsamið kaupverð. Skýringar á því geta verið ýmsar af hálfu kaupanda en seljandinn er beðinn um að innleysa tékkann í sínum viðskiptabanka og senda mismuninn til kaupanda í gegnum peningaflutningaþjónustu. Með þessu er seljandinn blekktur til þess að innleysa falsaðan tékka og senda ágóðann til útlanda.Erlendir auglýsingavefir þar sem leiguhúsnæði er á boðstólum hafa stundum verið Íslendingum skeinuhættir og ber þá sérstaklega að varast að senda ókunnum aðilum fyrirframgreiðslur fyrir húsaleigu í gegnum Western Union, MoneyGram eða sambærileg peningaflutningafyrirtæki.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira