Szczesny: Ætlar að safna hári ef Pólland lendir á móti Englandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2011 15:30 Wojciech Szczesny er alltaf til í að bregða á leik. Mynd/Nordic Photos/Getty
Wojciech Szczesny, markvörður Arsenal og pólska landsliðsins, vill endilega lenda í riðli með Englendingum á Evrópumótinu sem fram fer í Póllandi og Úkraínu næsta sumar. Það verður dregið í riðla seinna í dag. Szczesny segist ætla að heiðra gamla pólska markvörðinn Jan Tomaszewski verði hann að ósk sinni. Brian Clough kallaði Tomaszewski á sínum trúð en hann spilaði með mikið hár og vakti mikla athygli í jafntefli á móti enska landsliðinu í undankeppni HM 1974. Úrslit í þeim leik urðu til þess að enska landsliðið komst ekki á HM en Pólverjar fóru alla leið og urðu í þriðja sæti á HM í Vestur-Þýskalandi 1974. „Ég hef sagt strákunum í liðinu að ég mun safna hári ef við lendum í riðli með Englandi. Það væri frábært. Það ættu allir á Englandi að muna eftir markverðinum sem spilaði á Wembley 1973. Ég mun safna hári eins og hann og reyna síðan að standa mig jafnvel," sagði Wojciech Szczesny. „Ég þarf kannski að spila með hárkollu ef ég næ ekki að safna nógu hári fyrir leikina næsta sumar," bætti Szczesny við í léttum tón. Pólland er í efsta styrkleikaflokki ásamt Spáni, Hollandi og hinum gestgjöfunum sem er Úkraína. England er í öðrum styrkleikaflokki með Ítalíu, Þýskalandi og Rússlandi.
Mest lesið Sofnaði í aftursætinu á leið á Ólympíuleikana og komst aldrei alla leið Sport „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Handbolti „Mér býður við þessu, satt best að segja“ Enski boltinn Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Sport Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sport „Eins og hann búist ekki við skotum sem er skrítið fyrir markvörð“ Fótbolti Kominn með nóg af flakkinu Íslenski boltinn „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Enski boltinn Hákon tekinn af velli í hálfleik í tapleik Fótbolti Þórsarar fá nýtt íþróttahús Sport Fleiri fréttir Rooney vill halda Guardiola hjá City „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ „Eins og hann búist ekki við skotum sem er skrítið fyrir markvörð“ Kominn með nóg af flakkinu „Mér býður við þessu, satt best að segja“ „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Slot býst við Isak í mars og vonast eftir „bestu útgáfunni“ af honum Hákon tekinn af velli í hálfleik í tapleik Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Stórsigur hjá Forest en Brann tapaði á heimavelli „Prestianni-lögin“ gætu orðið hluti af fótboltanum Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Reddaði Blikum en þurfti svo að vera í stúkunni Frekur Gordon minnti á Shearer og bætti markamet hans Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu Þjálfari danska dýnamítsins fallinn frá „Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur“ Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Fabrégas reif í treyju leikmanns en Allegri fékk rautt spjald „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Atletico Madrid missti niður tveggja marka forskot í Belgíu Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistaradeildinni Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Elísa skoraði glæsimark hjá Fanneyju en Blikar töpuðu 11-1 samanlagt Gordon bakarameistarinn í bökun í Bakú „Af hverju ætti hann að vera að setja treyjuna yfir munninn?“ Sverrir frá Eyjum til FH Benítez valtur í sessi og gamall lærisveinn hans gæti stýrt Sverri Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu