Sendu persónuupplýsingar um sjúklinga í fjöldapósti Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. desember 2011 18:20
Starfsmaður á vegum Háskóla Íslands sendi í fyrradag út tölvupóst með boði um þátttöku í rannsókn á vegum Háskóla Íslands, Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með þeim hætti að viðtakendur póstsins sáu netföng hvers annars. Afleiðingarnar eru þær að sjá má netföng fólks sem hefur leitað á vissar göngudeildir Landspítala, meðal annars göngudeild geðsviðs, á ákveðnu tímabili. Í yfirlýsingu frá Sigurði Guðmundssyni, forseta Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og Ólafi Baldurssyni, framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala, segir að um sé að ræða mikilvæga rannsókn á hugsanlegri reynslu einstaklinga af ofbeldi í nánum samböndum. Leyfi Vísindasiðanefndar hafi legið fyrir um framkvæmd rannsóknarinnar. Seinna hafi fengist viðbótarleyfi nefndarinnar til að senda spurningalista rannsóknarinnar á það netfang sem skjólstæðingar viðkomandi göngudeilda gáfu upp. Ekki hafi verið leitað til framkvæmdastjóra lækninga sem ber ábyrgð á vörslu sjúkraskráa spítalans varðandi viðbótarleyfi til þess að nota tölvupóst með þessum hætti. Óskað hafi verið leyfis til að hafa samband í tölvupósti vegna áhyggna af því að bréf eitt sér ætti frekar á hættu að vera lesið af hugsanlegum gerendum í ofbeldismálum. Hins vegar sé ljóst að í þessu tilfelli hafi ætlunin verið að senda tölvupóstinn persónulega á hvern einstakling, ekki fjölpóst. Það hafi verið alvarleg mistök hjá starfsmanni Háskóla Íslands sem ekki verði dregin til baka. Fyrir hönd Háskóla Íslands og Landspítala sé beðist afsökunar á þessum mistökum. „Þegar mistökin urðu ljós í gær, ákvað Vísindasiðanefnd að afturkalla leyfi til rannsóknarinnar tímabundið á meðan rannsókn á tildrögum málsins fer fram. Málið er ennfremur til meðferðar hjá Persónuvernd. Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala og Háskóli Íslands munu láta gera sérstaka rannsókn á málinu og markmið hennar eru að hliðstæð mistök verði ekki endurtekin. Miklu máli skiptir að traust almennings á vísindarannsóknum og skilningur á mikilvægi þeirra bíði ekki tjón. Einstaklingum sem líður illa vegna póstsins eða telja sig hafa orðið fyrir skaða vegna þessa máls er boðið að hafa samband við geðsvið Landspítala,“ segja þeir Sigurður Guðmundsson og Ólafur Baldursson.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira