Brotthvarf hefst frá Afganistan í sumar 24. júní 2011 01:00 Hamid Karzai, forseti Afganistans, segist sannfærður um að heimamenn geti tekið að sér öryggismálin.nordicphotos/AFP
Bandaríski herinn verður að mestu farinn frá Afganistan í árslok árið 2014, standist áætlanir Baracks Obama forseta. Hann skýrði frá því í gær að fimm þúsund hermenn færu heim strax í sumar og aðrir fimm þúsund fyrir árslok. Fyrirhugað er er að 33 þúsund af samtals 100 þúsund bandarískum hermönnum verði farnir frá Afganistan um mitt næsta ár. Þetta er álíka mikill fjöldi og sendur var til Afganistans árið 2009 til að tryggja árangur í stríðinu við talibana og aðra uppreisnarhópa, sem þá voru mjög að sækja í sig veðrið. Enn verða þó sjötíu þúsund bandarískir hermenn eftir í Afganistan, en þeir eiga að fara þaðan í áföngum á árunum 2013 og 2014. Eftir það verða þar reyndar áfram einhverjir bandarískir hermenn, en þeir eiga ekki að taka þátt í bardögum heldur vera heimamönnum til ráðgjafar og þjálfunar með svipuðum hætti og nú er í Írak. Hamid Karzai, forseti Afganistans, sagðist sannfærður um að afganski herinn, sem nú þegar hefur fengið töluverða þjálfun og fræðslu frá Bandaríkjaher, muni ráða við verkefnið og geta tekið við af Bandaríkjaher. Ráðamenn Evrópuríkja hafa fagnað ákvörðun Bandaríkjaforseta, sem hann skýrði frá í sjónvarpsávarpi í fyrrakvöld. Bæði Frakkar og Bretar ætla nú að fylgja í kjölfarið og hefja brotthvarf herliðs síns frá Afganistan. Frakkar eru með um fjögur þúsund hermenn þar og ætla að hefja brottflutning strax í sumar. Bretar ætla sömuleiðis að kalla 450 hermenn heim frá Afganistan nú í sumar. Bandarískir þingmenn beggja flokka hafa hins vegar viðrað efasemdir sínar. Demókratar segja of hægt farið í brottflutning herliðsins, sem kosti þjóðina allt of miklar fórnir, en repúblikanar óttast að of geyst sé farið. Mike Mullen, yfirmaður bandaríska herráðsins, sagðist styðja ákvörðun forsetans, en sagði Obama þó fara hraðar í sakirnar en hann hefði búist við. „Meira herlið til lengri tíma væri vafalaust öruggari leið,“ sagði hann. „Það þýðir þó ekki endilega að það væri besta leiðin.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Fleiri fréttir Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Sjá meira