Gengur ekki lengur að nota hrunið sem afsökun 1. desember 2011 12:31 Gunnar segir að treysti meirihlutinn sér ekki til þess að reka samfélagið ætti hann að fara frá völdum. Mynd/Vilhelm
Landsbyggðarþingmönnum var heitt í hamsi í atkvæðagreiðslu um niðurskurð heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni síðdegis í gær og sagði þingflokksformaður framsóknarmanna, Gunnar Bragi Sveinsson, að það þýddi ekki lengur fyrir ríkisstjórnina að nota hrunið sem afsökun. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kom upp í ræðustól til að gagnrýna breytingartillögur sem stjórnarandstöðuþingmenn gerðu við fjárlögin þess efnis að framlög yrðu hækkuð til sjúkrastofnana á landsbyggðinni og þannig dregið yrði úr niðurskurðinum ,,..þar sem ótal tillögur eru fluttar um aukningar alveg úr takti við þann veruleika sem við búum við vegna tekjuskerðingar," sagði Guðbjartur. ,,Heilbrigðismálin sem betur fer halda sínum hlut af tekjum, halda sínum hlut af landsframleiðslu. Þetta er ekki auðvelt en það er ómaklegt að segja að þetta sé tilviljunarkennt og það er ómaklegt að segja að að það sé verið að tala um einhvern hrylling," sagði ráðherrann. Framsóknarmaðurinn Gunnar Bragi Sveinsson svaraði Guðbjarti: ,,Það gengur ekkert að koma hér í hvert einasta skipti sem ríkisstjórnin og ráðherra þurfa færa rök fyrir sínu máli og segja að hér hafi orðið hrun. Þetta er bara ekkert marktækt lengur," sagði Gunnar Bragi og bætti við: ,,Það er verið að vega að grunnþjónustu í heilbrigðiskerfinu hringinn í kringum landið og á því ber þessi stjórnarmeirihluti ábyrgð. Hann ber ábyrgð. Og ef hann treystir sér ekki til þess að reka þetta samfélag á þeim nótum, - vitandi það jú að hér varð hrun, - ef hann treystir sér ekki til að bregðast við því, - þá á hann að fara frá völdum nú þegar."
Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Fleiri fréttir Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Sjá meira