Úthlutun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur í 83 sinn 1. desember 2011 20:30
Hjartagæska Íslendinga sýnir sig í margskonar myndum rétt fyrir jól og ekki síst við söfnun og úthlutun jólaglaðninga Mæðrastyrksnefndar eins og Hugrún Halldórsdóttir fékk að kynnast í dag. Í dag komu nokkrir kvenskörungar saman og kynntu jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur sem fer nú fram í áttugasta og þriðja sinn. Úthlutanir í fyrra voru um fjögurþúsund og býst Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður, við álíka fjölda þetta árið. „Í jólaglaðningi er fyrst og síðast góður matur. Það er kjöt og það er ís, grænmeti og ávextir og eitt og annað sem maður notar á jólunum," segir Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Matvæli og ýmsar vörur tengdar jólahaldinu hafa þegar borist frá einstaklingum og fyrirtækjum. „Íslendingar þeir eru nefnilega mjög hjálpsöm þjóð þegar í harðbakkann slær. Og við höfum verulega fundið fyrir því," segir Ragnhildur. Og Mæðrastyrksnefnd gefur ekki einungis mat og gjafir þessi jól heldur einnig hlýju og kærleik. Og ekki nóg með það heldur fá sjálfboðaliðarnir slíkt hið sama til baka frá þeim sem þiggja glaðningana. „Það kom til mín maður í gær sem kemur mjög sjaldan en þegar hann kemur þá kemur hann vegna þess að ég veit að hann á enga peninga. Þá yfirleitt lítur hann ekki upp, kærir sig ekki um það, en undanfarið þá hefur hann gert það af því að maður tekur utan um hann og segir er ekki allt í lagi og hvernig hefurðu það. Og í gær þá fannst mér svo yndislegt þegar hann kom svona dapur, það var ekki yndislegt, heldur þegar hann fór, þá fór hann með bros á vör og þegar hann sagði: "það er svo gott að koma til ykkar" þá verður maður náttúrulega svo glaður," segir Lára Axelsdóttir, sjálfboðaliði. Úthlutað verður dagana 19. til 21. desember að Fiskislóð 14. Nánari upplýsingar um skráningar og annað má finna á vef Mæðrastyrksnefndar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira