Vilja veita Liu Xiabo pólitískt skjól hér á landi 16. desember 2011 17:00 Thorbjörn Jagland, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar, við auðan stól verðlaunahafans, kínverska andófsmannsins Liu Xiaobo. Mynd/AP
Þingmenn VG, þeir Þráinn Bertelsson og Björn Valur Gíslason, hafa lagt fram þingsályktunartillögu um ríkisstjórnin bjóði kínverska andófsmanninum og nóbelsverðlaunahafanum Liu Xiaobo pólitískt skjól á Íslandi. Í greinargerð með tillögunni segir að á undanförnum árum hafi kínversk stjórnvöld og fyrirtæki sýnt Íslandi „lofsamlegan áhuga, nú síðast þegar auðjöfurinn og ljóðskáldið Huang Nubo vildi festa kaup á stórri spildu af Íslandi vegna ástar sinnar á landinu. Það væri við hæfi fyrir Íslendinga að endurgjalda þennan áhuga með því að skjóta skjólshúsi yfir Liu Xiaobo sem ekki virðist vera pláss fyrir í hinu víðlenda heimalandi stórskáldsins Li Bai (Lí Pó) sem eins og hinn hagorði Huang Nubo nú öldum síðar bar orðstír heimalands síns um alla heimsbyggðina.“ Einnig segir að Liu Xiabo hafi hlotið friðarverðlaun Nóbels árið 2010 „fyrir langa og friðsamlega baráttu sína fyrir grundvallarmannréttindum í Kína. Liu Xiaobo er einn höfunda Charter 08 yfirlýsingarinnar sem hvetur til lagalegra og pólitískra umbóta í Kína svo að landið verði lýðræðisríki sem virðir mannréttindi.“ „Kínversk yfirvöld beittu sér mjög gegn því að kínverski friðarsinninn fengi verðlaunin og höfðu uppi ýmsar hótanir í garð norskra stjórnvalda af því tilefni. Þau brugðust á endanum afar illa við afhendingunni og töldu hana ganga gegn öllum meginreglum friðarverðlaunanna og vera nánast „goðgá".“ „Liu Xiaobo var handtekinn 8. desember 2008 vegna friðarbaráttu sinnar og ákærður fyrri að hvetja til undirróðurs gegn kínverskum yfirvöldum. Á jóladag 2009 var hann síðan dæmdur til ellefu ára fangavistar fyrir framangreindar sakir að loknum réttarhöldum sem stóðu aðeins yfir í tvo klukkutíma,“ segir einnig.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira