Sex flokka stjórnin tekin við völdum 23. júní 2011 04:45 Jyrki Katainen forsætisráðherra ásamt nokkrum af meðráðherrum sínum á leið til forsetahallarinnar í Helsinki í gær.nordicphotos/AFP
Jyrki Katainen hlaut í gær stuðning 118 þingmanna gegn 72 til myndunar sex flokka ríkisstjórnar, sem hann boðaði í síðustu viku að yrði mynduð. Ásamt Þjóðstjórnarflokki Katainens, sem er hægriflokkur, eiga Sósíaldemókratar, Vinstribandalagið, Græningjar, Sænski þjóðarflokkurinn og Kristilegir demókratar aðild að stjórninni. Stefna stjórnarflokkanna sex er afar mismunandi, því þarna eru innbyrðis jafnt hægri sem vinstri flokkar. Meginforsenda stjórnarsamstarfsins virðist hafa verið sú helst að halda Sönnum Finnum, hinum umdeilda stjórnmálaflokki vinstri þjóðernissinna, utan við stjórnina. Sannir Finnar fengu mikið fylgi í þingkosningunum, sem haldnar voru fyrir tveimur mánuðum. Þeir eru nú þriðji stærsti flokkurinn á þingi, með 39 þingmenn af 200, næst á eftir Þjóðstjórnarflokki Kaitanens, sem er með 44 þingsæti, og Sósíaldemókrötum, sem eru með 42 þingmenn. Sannir Finnar hafa staðið hart gegn því að Finnland taki þátt í kostnaði við fjárhagslegar björgunaraðgerðir Evrópusambandsins vegna skuldavanda Grikklands og fleiri evruríkja. Öll aðildarríki Evrópusambandsins þurfa að standa sameiginlega að þeim björgunaraðgerðum, þannig að andstaða finnsku stjórnarinnar, væru Sannir Finnar innanborðs, myndi hleypa þeim aðgerðum í uppnám. Katainen sagði stjórnarmyndunarviðræðurnar hafa verið erfiðar og viðurkenndi að líklega verði stjórnarsamstarf flokkanna sex ekki auðvelt. Tveir þingmanna Vinstribandalagsins greiddu atkvæði gegn stjórninni í gær, þrátt fyrir að flokkur þeirra eigi aðild að stjórnarsamstarfinu. Tarja Halonen, forseti Finnlands, sagði í ávarpi sínu til nýju stjórnarinnar að hún yrði að taka tortryggni kjósenda, sem kom fram í þingkosningunum fyrir tveimur mánuðum, alvarlega. Auk Sannra Finna er Miðflokkurinn utan stjórnarinnar, en Miðflokkurinn er bændaflokkur á miðju pólitíska litrófsins. Hann fékk 35 þingsæti í kosningunum og er þar með fjórði stærsti flokkurinn á þingi.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Innlent Skýr mynd komin á dularfullt andlát á Skjólbraut Innlent Gerður höfundur að fræðigrein sem hann skrifaði ekki Innlent Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Erlent Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Innlent Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Erlent Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Innlent Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Innlent Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Erlent Ríkið brotlegt í einu máli en sýknað í öðru Innlent Fleiri fréttir Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna Borgin ber enga ábyrgð í Gufunesbruna og stjórnarmaður í Truenorth segir tjónið óbætanlegt Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Kynnir sér möguleika varðandi Íran og leggur toll á vinaríki klerkastjórnarinnar Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Þvert nei Grænlendinga við yfirtöku Bandaríkjanna Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu Hefja formlega rannsókn á kynferðislegum fölsunum Musk Stuðningsmenn klerkastjórnarinnar fjölmenna á götum Tehran Hafa lokað yfir hálfri milljón samfélagsmiðlaaðganga Rannsaka nú og skoða ákærur gegn seðlabankastjóranum Trump íhugar íhlutun í Íran Danir standi á krossgötum Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Páfi hefur áhyggjur af tjáningarfrelsi á Vesturlöndum Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Bandaríkin gerðu loftárásir gegn ISIS í Sýrlandi Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Hverfi Kúrda í Aleppo í herkví Þeir allra ríkustu búnir með „kolefniskvótann“ Meðal möguleika að greiða Grænlendingum milljónir Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Allt bendi til þess að breytingar séu í farvatninu Annar eigandi skemmtistaðarins í Sviss í haldi Sjá meira