Refsað fyrir hallafjárlögin 23. júní 2011 03:30 Kaliforníuríki sparar sér nokkrar milljónir króna á dag meðan þingmenn eru launalausir. nordicphotos/AFP
Þingmenn Kaliforníuríkis fá engin laun greidd fyrr en þeim tekst að afgreiða hallalaus fjárlög. Búist er við því að þeir þurfi að minnsta kosti viku til að ljúka verkinu. John Chiang, fjármálastjóri Kaliforníuríkis, tók þessa ákvörðun í samræmi við lög sem Kaliforníu-búar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu í nóvember síðastliðnum. Samkvæmt þessum lögum má svipta þingmenn bæði launum og dagpeningum takist þeim ekki að afgreiða hallalaus fjárlög fyrir 15. júní ár hvert. Launagreiðslur hefjast að nýju um leið og fjárlög liggja fyrir, en launalausi tíminn verður þó ekki bættur með eftirágreiðslu launa. Lögin voru borin undir þjóðaratkvæði til þess að skapa þrýsting á þingmenn, sem á hverju ári hafa skilað fjárlögum löngu eftir að tilskilinn frestur til þess, nefnilega 15. júní, er liðinn. Þingmennirnir lögðu því óvenju hart að sér í ár og fögnuðu ákaft þegar fjárlög voru samþykkt á síðustu stundu. Gleðin rann hins vegar fljótt af þeim þegar fjármálastjórinn skýrði frá launasviptingunni, enda voru þessi fjárlög ekki hallalaus.- gb
Mest lesið Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Erlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent Páfi hefur áhyggjur af tjáningarfrelsi á Vesturlöndum Erlent Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Fleiri stelpur týndar en áður Innlent Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Fleiri fréttir Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Páfi hefur áhyggjur af tjáningarfrelsi á Vesturlöndum Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Bandaríkin gerðu loftárásir gegn ISIS í Sýrlandi Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Hverfi Kúrda í Aleppo í herkví Þeir allra ríkustu búnir með „kolefniskvótann“ Meðal möguleika að greiða Grænlendingum milljónir Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Allt bendi til þess að breytingar séu í farvatninu Annar eigandi skemmtistaðarins í Sviss í haldi Verði að eignast Grænland svo Kína og Rússland geri það ekki Tuga saknað eftir ruslskriðu á Filippseyjum Bresk stjórnvöld segja viðbrögð X „móðgandi“ Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Stendur fastur fyrir og fordæmir Trump Flytja áhöfn geimstöðvarinnar heim vegna veikinda Hjón skotin af alríkisútsendurum í Portland Takmarka myndaframleiðslu Grok í skugga gagnrýni Segir Bandaríkin þurfa að eignast Grænland, sáttmálar séu ekki nóg Netsambandslaust meðan mótmælt er í Íran Bandaríkin áður mun öflugri á Grænlandi Telur að Evrópa myndi fórna Grænlandi fyrir NATÓ Mikil spenna í Minneapolis eftir banaskot ICE-liða Veikindi geimfara gætu flýtt heimför áhafnar geimstöðvar Segist hafa grænt ljós frá Trump fyrir frekari refsiaðgerðum gegn Rússum Enn mótmælt í Íran og átök að aukast Gervigreind Musk sögð hafa búið til kynferðislegar myndir af ellefu ára gömlum börnum Sjá meira