Fór konuvillt á Lundanum - aðsúgur gerður að lögreglu við Prófastinn 26. apríl 2011 16:56 MYND/Óskar P. Friðriksson
Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið enda páskahelgin oft erilsöm. Í tilkynningu frá lögreglu segir að töluverður fjöldi fólks hafi skemmt sér á öldurhúsum bæjarins og fór nokkur tími lögreglunnar í að sinna fólki sem ekki gat bjargað sér sökum ölvunar. „Ein líkamsárás var kærð til lögreglu eftir skemmtanahald páskahátíðarinnar en hún átti sér stað á veitingastaðnum Lundanum aðfaranótt annars í páskum,“ segir lögreglan en þar hafði karlmaður slegið konu þannig að hún fékk sár á enni, auk þess sem hann reif í hár hennar. „Ekki liggur fyrir ástæða árásarinnar en flest bendir til þess að maðurinn hafi farið konuvillt,“ segir í tilkynningunni. Málið er í rannsókn. Aðfararnótt 21. apríl var gerður aðsúgur að lögreglumönnum sem voru að sinna skyldustörfum við veitingastaðinn Prófastinn. „Þarna hafði lögreglan haft afskipti af ungum manni og ætluðu félagar hans að frelsa hann frá lögreglunni. Þurfti lögregla að beita piparúða og kylfum til að róa ástandið,“ segir ennfremur en sömu nótt voru þrír menn handteknir vegna gruns um að þeir hafi átt þátt í að skemma stafi á Tryggingamiðstöðinni. „Við yfirheyrslu hjá lögreglu höfnuðu þeir alfarið að hafa átt þátt í þessum skemmdum og var þeim sleppt í framhaldi af skýrslutöku. Óskar lögreglan eftir upplýsingum um þann eða þá sem olli þessum skemmdum.“
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira