Kranjcar tryggði Tottenham þrjú stig aðra helgina í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2011 19:33 Niko Kranjcar fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Niko Kranjcar tryggði Tottenham þrjú stig aðra helgina í röð þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 2-1 útisigri á Sunderland í kvöldleiknum í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham náði með þessum sigri þriggja stiga forskoti á Chelsea í baráttunni um fjórða sætið en Chelsea á leik inni á mánudaginn. Sunderland er hinsvegar áfram í sjöunda sætinu, tveimur stigum á eftir Liverpool. Liðið er búið að tapa þremur leikjum í röð þrátt fyrir að komast yfir í þeim öllum. Kranjcar skoraði einnig sigurmark Tottenham á móti Bolton um síðustu helgi en það mark kom í uppbóttartíma leiksins. Mark Kranjcar kom aftur á móti 33 mínútum fyrir leikslok. Bæði þessi sigurmörk Króatans hafa verið af glæsilegri gerðinni því hann skoraði markið sitt í kvöld með óverjandi viðstöðulausu skoti af vítateigslínunni en markið fyrir viku kom með frábæru skoti fyrir utan teig. Ganamaðurinn Asamoah Gyan kom Sunderland í 1-0 með laglegri afgreiðslu á 11. mínútu en Williams Gallas, varnarmaður Tottenham, var á sama tíma að skipta um skó á hliðarlínunni. Michael Dawson jafnaði leikinn á 44.mínútu með skalla eftir hornspyrnu frá Niko Kranjcar. Sigurmark Kranjcar kom síðan á 57. mínútu leiksins.
Mest lesið Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti EM í dag: Flensuleikur Jordans og athyglissjúkir dómarar Handbolti „Núna er allt betra“ Handbolti Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 24-23 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti „Ég hef prófað þetta og þetta virkar“ Handbolti Fleiri fréttir Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Sjá meira
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti
Einkunnir Strákanna okkar á móti Ungverjalandi: Viktor vaggaði Ungverjagrýlunni í svefn Handbolti