Stjórnarandstaðan fær að vera með 18. janúar 2011 03:15 Íbúar í Túnis flykktust út á götur í gær, harla ánægðir með þróun mála. nordicphotos/AFP
Mohammed Ghannouchi verður forsætisráðherra áfram í nýrri þjóðstjórn í Túnis, sem tók við völdum í gær, aðeins fáeinum dögum eftir að Zine al-Abidine Ben Ali forseta var steypt af stóli. Ghannouchi hefur verið forsætisráðherra síðan 1999 og náinn bandamaður Bens Ali forseta, sem flúði land um helgina eftir að almenningur gerði uppreisn gegn honum. Ghannouchi segir að nú verði teknir upp lýðræðislegir stjórnarhættir. Öllum stjórnmálaflokkum verði leyft að starfa, fjölmiðlafrelsi verði virt og pólitískir fangar verði látnir lausir. Samkvæmt stjórnarskrá verða forsetakosningar haldnar innan tveggja mánaða. Fréttir bárust af því í gær að þrír stjórnarandstæðingar, þeir Ahmed Ibrahim, Mustafa Ben Jafaar og Sidi Amamou, yrðu með í nýju stjórninni. Ben Ali, sem hafði stjórnað landinu í 23 ár, fór sínu fram af hörku og leyfði enga opinbera gagnrýni. Hann var sagður reka landið eins og fjölskyldufyrirtæki, algerlega eftir eigin duttlungum. Uppreisn almennings gegn honum hófst í desember eftir að atvinnulaus stúdent, Mohamed Bouazizi, stytti sér aldur með því að kveikja í sér eftir að yfirvöld höfðu bannað honum að selja grænmeti úti á götu. Mótmælin hófust í heimabæ hans, Sidi Bouzid, og bárust smám saman út um landið. Þegar stjórnvöld brugðust við af hörku og skutu á mótmælendur magnaðist reiði almennings, sem hafði hvort eð er fyrir löngu fengið nóg af spillingu og ofríki stjórnarinnar. Líklegt þykir að uppljóstranir á vef Wikileaks í síðasta mánuði, þar sem fram komu upplýsingar um spillingu stjórnvalda, hafi átt sinn þátt í að ýta undir óánægjuna. Óvíst er hvort mótmælendurnir munu sætta sig við að helstu ráðherrar fyrri stjórnar, svo sem utanríkisráðherrann, varnarmálaráðherrann og innanríkisráðherrann, verði áfram við völd ásamt forsætisráðherranum Ghannouchi. Margir stjórnarandstæðingar komu þó saman á götum úti til að fagna breytingunni og lýsa yfir von um að ekki verði horfið aftur til einræðisfyrirkomulags fráfarandi forseta. Óvíst er einnig hvort þessi bylting í Túnis, sem gengið hefur óvenju hratt fyrir sig, hefur áhrif víðar í arabaheiminum, þar sem almenningur er ekki alls staðar sáttur við ólýðræðislega stjórnarhætti. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Sjá meira