Sektuð fyrir vatnsskemmdir og má ekki fara inn til nágrannans í tvö ár Valur Grettisson skrifar 2. febrúar 2011 09:54 Dorrit Moussaieff má ekki fara inn í íbúð nágrannans í tvö ár.
Dorrit Moussaieff hefur verið dæmd til þess að greiða innanhússhönnuðinum Tiggy Butler þúsund pund, eða um 185 þúsund krónur vegna vatnsskemmda, og hefur að auki verið meinað að stíga yfir þröskuld heimilis hennar í tvö ár. Þetta kemur fram í Daily Mail en þar kemur einnig fram að forsetafrúin ætli að áfrýja málinu. Dómurinn er afleiðing nágrannaerja á milli Dorritar og Tiggyar, sem var ástkona Tony Ryan, sem stofnaði Ryanair flugfélagið. Það var fyrir um tveimur árum sem vatn lak úr glæsiíbúð Dorritar í húsi sem snýr út að torgi í auðmannahverfinu Knightsbridge í London. Tiggy býr fyrir neðan hana. Dorrit á að hafa farið út úr íbúð sinni, niður á hæðina til Tiggys, þar sem hún á að hafa farið óboðin inn á heimili innanhúshönnuðarins, sem kom að Dorrit þar sem hún á að hafa staðið á miðju stofugólfinu. Tiggy brást hin versta við og heimtaði að Dorrit yfirgæfi íbúðina, en hún neitaði að fara. Í kjölfarið lögsótti Tiggy forsetafrúna fyrir vatnsskemmdir og að hafa farið í leyfisleysi inn í íbúðina. Þá sakaði hún Dorrit einnig um ógnandi hegðun, hótanir, áreiti og að hafa misnotað diplómatíska friðhelgi sína. Þessu neitar Dorrit staðfastlega. Nágrannaerjurnar eiga sér einhverja forsögu. Þannig kemur fram í Daily Mail að Dorrit á að hafa hótað að lögsækja Tiggy fyrir nokkrum árum þegar iðnaðarmenn unnu við breytingar á íbúð þeirra síðarnefndu með þeim afleiðingum að mikið ryk læddist upp á efri hæðina. Dorrit vonast til þess að áfrýjun hennar verði tekin fyrir hjá breskum dómstólum í vor.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Sjá meira