Hogdson: Ég þarf ekki að sanna mig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. febrúar 2011 14:45 Nordic Photos / Getty Images
Roy Hodgson, nýráðinn stjóri West Brom, segir að hann þurfi ekkert að sanna hjá sínu nýja félagi eftir að hann var rekinn frá Liverpool fyrir fáeinum vikum. Roberto Di Matteo var látinn taka poka sinn fyrir stuttu og var Hodgson falið það verkefni að halda West Brom í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er sem stendur í fjórða neðsta sæti deildarinnar með 27 stig en Hodgson hefur nú tólf leiki til að safna nægilega mörgum stigum til að tryggja liðinu áfram sess í úrvalsdeildinni. Hodgson á langan feril að baki og hefur náð góðum árangri með mörg lið. „Ég held að mín 36 ár í þessu fagi tali sínu máli og ég hef ekkert að sanna," sagði Hodgson við enska fjölmiðla. „En ég tel að verkefnið sem mér var falið sé mjög mikilvægt." „Þeir eru margir sem stóla á mig til að halda félaginu uppi. Ég finn fyrir þeirri pressu og þeirri ábyrgð sem ég fylgir því verkefni." „En ég finn ekki fyrri neinni pressu og ég tel að leikmenn Liverpool myndu segja slíkt hið sama ef þeir væru spurðir að því." „Ég efast heldur ekki um sjálfan mig. Það gerðist sem gerðist og er nú í fortíðinni. Hvað mig varðar er þetta allt hluti af minni fortíð. Ég óska Liverpool alls hins besta enda frábært félag með mikið af góðu fólki. Samstarfið við leikmennina var gott og þeir lögðu mikið á sig fyrir mig."
Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Snorri semur til 2032 Handbolti Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Íslenski boltinn Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Handbolti „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Körfubolti Fleiri fréttir Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Sjá meira