Öll ríki verði skuldbundin losunarkvóta 12. desember 2011 05:00 Christiana Figueras, framkvæmdastjóri sautjánda aðildarríkjaþings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál sem haldin var í Durban í Suður-Afríku ræðir við þátttakendur. Mynd/Nordic Photos/afp
Samkvæmt samkomulagi sem gert var í fyrrinótt á loftslagsráðstefnu í Durban í Suður-Afríku taka þróuð ríki á sig lagalega bindandi skuldbindingar um minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda á grundvelli Kýótó- bókunarinnar. Í tilkynningu frá íslenska umhverfisráðuneytinu segir að nýtt samningaferli um lagalega bindingu allra ríkja eigi að hefjast á næsta ári og leiða til samkomulags árið 2015. Samkvæmt Kýótó-samkomulaginu taka nær 40 þróuð ríki á sig skuldbindingar um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda árin 2008 til 2012. Umhverfisráðuneytið segir viðræður um nýjar skuldbindingar hafa staðið í um fimm ár en hafa verið lengi í sjálfheldu vegna skilyrða frá ríkjunum sem bera skuldbindingarnar. „Annars vegar vilja þau að Bandaríkin, sem staðfestu bókunina ekki, hafi sambærilegar skuldbindingar og Kýótó-ríkin, en hins vegar að stór og ört vaxandi þróunarríki á borð við Kína, Indland og Brasilíu taki á sig aukna ábyrgð,“ segir ráðuneytið. Japan, Rússland og Kanada segjast ekki tilbúin að taka á sig frekari skuldbindingar undir Kýótó. Þá segir umhverfisráðuneytið þróunarríki hafa lagt ofurþunga á að Kýótó haldi áfram eftir 2012 þrátt fyrir að þau eins og Bandaríkin ætli að standa fyrir utan. Ríkin sem eru tilbúin að taka á sig nýjar skuldbindingar innan Kýótó eru ríki ESB, Ísland, Noregur, Sviss, Ástralía, Nýja-Sjáland og nokkur fleiri að. „Þessi ríki eru ábyrg fyrir um 16 prósentum heimslosunar,“ segir ráðuneytið. Á lokasprettinum í Durban náði ESB því fram að vinna hefjist við gerð nýs lagalega bindandi samkomulags sem nái til allra ríkja ekki síðar en 2020. Eftir 2012 verður Ísland ekki með sérstaka tölulega skuldbindingu innan Kýótó heldur verður undir sameiginlegu „hvolfi“ flestra Evrópuríkja. Samþykkt sú tillaga Íslendinga að endurheimt votlendis komi til tekna varðandi losunarkvóta. „Votlendistillaga Íslands hefur almennt fengið jákvæðar undirtektir,“ segir umhverfisráðuneytið. gar@frettabladid.is
Mest lesið „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Innlent Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi Innlent Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Innlent Fleiri fréttir Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Sjá meira