Opna fimm kafla og loka fjórum í dag 12. desember 2011 05:00 Stefán Haukur Jóhannesson og Össur skaprhéðinsson Aðalsamningamaður Íslands í viðræðunum við ESB og utanríkisráðherra. Fréttablaðið/GVA
Fimm samningskaflar verða opnaðir á þriðju ríkjaráðstefnu í samningaviðræðum Íslands og ESB sem haldin er í Brussel í dag. Kaflarnir sem opnaðir verða í dag eru um félagarétt, atvinnu- og iðnstefnu, evrópsk samgöngunet, framlagsmál og um réttarvörslu og grundvallarréttindi. Gert er ráð fyrir að fjórum af þessum köflum verði lokað á saman fundi. Aðeins framlagakaflinn verður áfram opinn. Honum er jafnan lokað þegar samningsniðurstaða í öllum öðrum köflum liggur fyrir. Eftir daginn í dag hafa verið opnaðir alls ellefu af þeim 33 köflum sem eru til umfjöllunar og átta verið lokað. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra leiðir íslensku sendinefndina í dag. Kaflinn um réttarvörslu og grundvallarréttindi er sá fyrsti sem er opnaður og ekki er hluti af EES-samningnum. Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, segir kaflanum verða lokað samdægurs. Það helgist meðal annars af því að Ísland sé aðili að Mannréttindasáttmála Evrópu og öðrum alþjóðasáttmálum á sviði mannréttinda. Þessi kafli hafi reynst öðrum umsóknarríkjum, nú síðast Króatíu, þungur fyrir fæti og mikið reynt á. „Að við skulum ljúka þessum kafla svo fljótt í ferlinu, og á sama degi og hann er opnaður, endurspeglar því hve nærri Ísland stendur Evrópu í mörgu tilliti,“ segir aðalsamningamaður Íslands.- gar
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira