Dýrum vímuefnum skipt út fyrir ódýrari Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. desember 2011 16:06 Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi segir vísbendingar um að dýrari vímuefnum hafi verið skipt út fyrir ódýrari. mynd/ stefán.
Verð á vímuefnum hefur farið lækkandi undanfarin tvö ár, samkvæmt verðmælingum sem SÁÁ gerir meðal sjúklinga á Vogi. Þessar verðkannanir hafa verið gerðar mánaðarlega síðan um aldamót og sýna vel verðþróun á þessum markaði. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir vísbendingar um að menn séu að skipta dýrari vímuefnum út fyrir þau ódýrari. Þegar litið er yfir tímabilið allt kemur í ljós að vímuefnaverð hélt í við verð á áfengi allt fram yfir efnahagshrunið 2008. Þegar áfengi hækkaði vegna gengisfalls krónunnar og hækkunar áfengisgjalds elti vímuefnaverðið þessa hækkun. Í ársbyrjun 2010 skildi á milli í fyrsta skipti og á meðan áfengi hélt áfram að hækka lítillega lækkaðu vímuefnin umtalsvert. Og sú lækkun hefur haldið. Þórarinn Tyrfingsson segir að það sé mjög flókið að túlka þessar niðurstöður. „Þýðir það það að eftirspurn hafi minnkað eða þýðir þetta það að menn hafi bara minni pening á milli handanna. Það þýðir ekki að bjóða vöru sem enginn hefur efni á að kaupa," segir Þórarinn. Þórarinn segir að framboð á ákveðnum vímuefnum hafi minnkað og þá hafi önnur vímuefni komið í staðinn. „Hlutdeild áfengis jókst og hlutdeild lyfja jókst, " segir Þórarinn. Þar á hann fyrst og fremst við ritalin sem kom inn í staðinn fyrir önnur örvandi efni eins og kókaín, amfetamín og e-pillur. „Ég ímynda mér að það hafi verið fyrst og fremst verið efnahagslegar ástæður sem voru fyrir því að framboð á ólöglegu amfetamíni, kókaíni og e-pillum minnkaði," segir Þórarinn.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira