Íbúar í Brisbane búa sig undir stórflóð 12. janúar 2011 06:00 Íbúar fylgjast með vatnsborði Brisbane-árinnar hækka.
Það var engu líkara en að tsunami-flóðbylgja hefði skollið á bænum Toowoomba í Ástralíu á mánudag. Gluggarúður sprungu í húsum og bílar þeyttust upp í tré og skoppuðu í flóðinu eins og korktappar. Brýr og gangbrautir skoluðust burt og fjöldi manns reyndi að halda dauðahaldi í staura og tré til að berast ekki með vatnsflaumnum. Að minnsta kosti tíu manns létu lífið en nærri áttatíu er enn saknað og er óttast að margir þeirra séu látnir. „Vatnið bókstaflega stökk sex eða tíu fet [tvö til þrjá metra] upp í loft, gegnum árfarvegi og yfir brýr og inn í almenningsgarða,“ segir Greg Kowald, rúmlega fimmtugur tónlistarmaður sem var á ferð í bifreið sinni þegar ósköpin dundu yfir. „Það var engin leið að komast undan, jafnvel þótt viðvörun hefði borist. Þetta var bara kílómetra breiður vatnsveggur.“ Alls hafa þá tuttugu manns farist í flóðunum í norðaustanverðri Ástralíu síðustu daga, sem stafa af óvenju mikilli úrkomu. Flóðin stefndu í gær í áttina til borgarinnar Brisbane, þar sem óttast er að um níu þúsund hús fari undir vatn á næstu dögum. Flóðin í ár virðast ætla að verða þau mestu sem þekkst hafa á þessum slóðum.- gb
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent „Nú er komið að mér“ Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira