Tækifæri fyrir ný framboð í þessu ástandi 10. desember 2011 12:16 Kjörstaður í Laugardal
Tækifæri fyrir nýja flokka og framboð liggja í því hversu fáir eru tilbúnir að styðja þá sem fyrir sitja á Alþingi samkvæmt nýrri könnun. Þetta segir stjórnmálafræðingur sem segir ástandið til marks um óvissu og óánægju með flokkana. Ný könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sýnir að ef gengið yrði til Alþingiskosninga nú þá myndi Sjálfstæðisflokkurinn fá tæplega fimmtíu prósent atkvæða, um sautján prósent myndu kjósa Samfylkinguna og svipaður fjöldi Framsóknarflokkinn. Þá myndu rúm þrettán prósent kjósa Vinstri græn og tæp þrjú prósent kjósa Hreyfinguna. Niðurstöðunum þarf þó að taka með fyrirvara þar sem óvenju fáir tóku afstöðu eða aðeins tæp 44%. Frá síðustu Alþingiskosningum hafa aldrei færri tekið afstöðu til þess hvaða lista þeir myndu kjósa, í könnunum Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir það vekja athygli hversu fáir eru tilbúnir að taka afstöðu og í því felast ákveðið vantraust á þá stjórnmálaflokka sem eiga menn á þingi. „Það getur bæði verið óánægja og svo náttúrulega óvissa. Það er talað um að það séu framboð í mótun sem eru ekki búin að spila út sínum spilum. Fólk kannski veit ekki hvað kemur til að vera í boði. Það er alveg ljóst að þetta andrúmsloft sem virðist vera í viðhorfum fólks til stjórnnmálanna hlýtur að vera þannig ástand að það liggja í því tækifæri fyrir nýja flokka og ný framboð," segir Grétar. Þrátt fyrir óánægju er óljóst um áhrif hennar á næstu kosningar og flokkakerfið, segir Grétar en kjörtímabilinu lýkur ekki fyrr en árið 2013. „Ef að sá dagur kemur að það fari að sjást betur að við erum farin að hafa það almennt betra, þá fer fólk að fá á tilfinninguna að stjórnmálaflokkarnir hafi reynst færir að koma landinu upp úr kreppunni." segir hann.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira