Gaddafi: Svikurum engin miskunn sýnd 18. mars 2011 12:02
Mikill fögnuður braust út í Bengazi, höfuðvígi uppreisnarmanna í Líbíu í gærkvöldi, þegar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti flugbann yfir landinu. Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn munu framfylgja flugbanninu en umfangsmiklar hernaðaraðgerðir hefjast um helgina. Flugbannið var samþykkt með 10 atkvæðum af fimmtán í Öryggisráðinu en Rússland, Kína, Brasilía, Indland og Þýskaland sátu hjá. Atkvæðagreiðslunni var sjónvarpað beint og fylgdust margir með henni á torgi í Bengazi en mikill fögnuður braust út efir að niðurstaðan lá fyrir. Í borginni hefur nú kviknað ný von um að borgarastyrjöldin sem í landinu geisar endi með falli einræðisherrans Gaddafi. Hann hafði aðeins örfáum klukkutímum áður en Öryggisráðið kom saman ávarpað íbúa Bengazi og sagt þeim að flýja borgina því hersveitar hans væru á leiðinni. Gaddafi sagði að svikurunum, eins hann kallar uppreisnarmennina, verði ekki sýnd nein miskunn eða samúð. Flugbannið verður til þess að jafna leikinn á milli hersveita Gaddafis og uppreisnarmanna en flugher Líbíu hefur verið notaður grimmt til að stráfella uppreisnarmenn og er ein höfuðástæða þess að Gaddafi hefur náð að brjóta sókn uppreisnarmanna á bak aftur og náð sjálfur snúa vörn í sókn. Flugbannið var hinsvegar samþykkt á þeim forsendum að vernda óbreytta borgara Það verða fyrst og fremst Bretar, Bandaríkjamenn og Frakkar sem koma til að framfylgja flugbanninu en það verður ekki auðvelt verk því Líbía er 7 milljónir ferkílómetra að flatarmáli. Þar að auki er skiptar skoðanir um skynsemi þess að framfylgja flugbanni, sem er í raun hernaðaríhlutun. Sumir segja að hafi lítil áhrif. Gaddafi geti auðveldlega athafnað sig á landi, en aðrir segja að óumflýjanlegt sé að saklausir borgarar muni láta lífið ef til loftárása kemur, sem er eitthvað sem Gaddafi mun án efa nýta sér í áróðri sínum.
Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Fleiri fréttir Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Sjá meira