Darren Bent og Micah Richards hafa báðir yfirgefið enska landsliðshópinn í knattspyrnu sem undirbýr sig fyrir leikinn gegn Wales á þriðjudaginn í undakeppni EM 2012.
Leikmennirnir glíma báðir við smávægileg meiðsli og verða því ekki í liðinu gegn Wales. Bent hefur ekki náð að æfa neitt með landsliðinu undanfarna viku eftir að gömul meiðsli í nára tóku sig upp á ný.
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendingu, tók því þá ákvörðun að senda þá báða til baka þar sem enginn tilgangur væri að hafa þá í hópnum ef þeir gætu hvorki æft né spilað.
23 leikmenn eru enn í leikmannahópnum hjá Capello og því mun enginn leikmaður koma inn í þeirra stað.
Bent og Richards verða ekki með gegn Wales vegna meiðsla
Stefán Árni Pálsson skrifar

Mest lesið




Úlfarnir steinlágu gegn City
Enski boltinn

Richarlison sýndi nýliðunum enga miskun
Enski boltinn

Markalaust á Villa Park
Enski boltinn


„Ég hélt að við værum komin lengra“
Enski boltinn

Amorim brattur: „Ég er bjartsýnni“
Enski boltinn
