Mótmælendur kveikja í sér 19. janúar 2011 07:00 Mótmæli í Túnis Maður með brauð í hendi borinn á höndum annarra mótmælenda. nordicphotos/AFP
Ungur atvinnulaus maður lést á sjúkrahúsi í Egyptalandi í gær. Hann hafði kveikt í sjálfum sér í hafnarborginni Alexandríu, augljóslega að fyrirmynd annars ungs manns, Mohameds Bouazizi, sem kveikti í sér í Túnis í desember og hratt af stað uppreisn gegn stjórn forsetans þar í landi. Fleiri ungir menn hafa gripið til sama ráðs í arabaheiminum undanfarið, þar á meðal þrír aðrir í Egyptalandi, sem lifðu þó allir af. Mótmælendur í Máritaníu og Alsír kveiktu einnig í sér, greinilega í von um að hrinda af stað uppreisn áþekkri þeirri sem varð í Túnis. Óvissa ríkir um líf þjóðstjórnarinnar í Túnis, sem tók við völdum á mánudag eftir að harðstjórinn Zine El Abidine Ben Ali hrökklaðist frá völdum. Mikil óánægja er í Túnis með þátttöku náinna samstarfsmanna Ben Alis í nýju stjórninni. Í gær sögðu fjórir andstæðingar Ben Alis af sér ráðherraembætti í nýju stjórninni, aðeins degi eftir að hún tók til starfa. Ekki var ljóst í gær hvort stjórnin væri þar með fallin. Efnt var til mótmæla í gær gegn RCD, flokki Ben Alis, og hrópuðu sumir: „Við getum lifað á brauði og vatni eingöngu, en ekki með RCD.“- gb
Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Innlent Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Innlent Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Erlent Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Innlent Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Innlent „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Innlent Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Erlent Fleiri fréttir Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Sjá meira