Óttast að ný borgarastyrjöld brjótist út 19. janúar 2011 07:00 Mynd af forsætisráðherra Risastór mynd af Saad Hariri, sem hefur verið forsætisráðherra síðan 2009 en missti þingmeirihluta sinn í síðustu viku.nordicphotos/AFP
Stuðningsmenn Hezbollah-samtakanna söfnuðust saman á nokkrum stöðum í Beirút, höfuðborg Líbanons, í gær, daginn eftir að fyrsta ákæran var lögð fram hjá Alþjóðlega sakadómstólnum í Haag vegna morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra. Talið er líklegt að einhverjir liðsmenn Hezbollah séu nefndir á nafn í ákæruskjalinu, en efni þess verður ekki gert opinbert nema dómstóllinn meti það nægilega rökstutt, sem verður ekki ljóst fyrr en eftir nokkrar vikur. Samtökin njóta mikils fylgis í Líbanon og hafna því algerlega að hafa átt nokkurn hlut að morðinu, sem framið var í febrúar árið 2005. Hariri lést ásamt 22 öðrum þegar flutningabifreið full af sprengiefnum sprakk við Miðjarðarhafsströndina. Hezbollah-samtökin, sem njóta stuðnings bæði sýrlenskra og íranskra stjórnvalda, segja málatilbúnaðinn runninn undan rifjum Ísraels og Bandaríkjanna. Réttarhöldin verði því aldrei annað en sýndarréttarhöld. Margir óttast að þau verði til þess að nú verði efnt til fjöldamótmæla og hætta sé á nýrri borgarastyrjöld í þessu stríðshrjáða landi, tveimur áratugum eftir að langvinnu borgarastríði lauk. Harðvítug átök brutust einnig út milli sjíamúslima og súnnía árið 2008. Þegar fréttir bárust af liðssöfnuði Hezbollah-manna tóku margir foreldrar í höfuðborginni Beirút börn sín úr skólum. Nokkrum skólum var lokað, en þegar mannfjöldinn hafði dreift sér á ný bárust tilkynningar um að þeir yrðu starfandi í dag. Saad Hariri, sonur hins myrta og arftaki hans á stóli forsætisráðherra landsins, hefur neitað að verða við kröfum frá Hezbollah um að hafna afskiptum dómstólsins. Þessi afstaða hans varð til þess að ellefu ráðherrar Hezbollah sögðu sig úr ríkisstjórn landsins í síðustu viku, með þeim afleiðingum að hún missti meirihluta sinn. Stjórnin átti að tryggja frið í landinu með því að Hezbollah væri í stjórn með þeim stjórnmálaöflum, sem þiggja stuðning frá Bandaríkjunum og Sádi-Arabíu. Daniel Bellemer, saksóknari í málinu, hvetur Líbana til að bíða átekta. Ákæran sem hann lagði fram verður tekin til skoðunar hjá dómstólnum og metið hvort nægar sannanir séu fyrir hendi til þess að byggja málaferli á henni. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Fleiri fréttir Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Sjá meira