Fótbolti

Stórfurðuleg mafíuyfirlýsing birtist á heimasíðu Hearts

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stuðningsmaður Hearts á góðum degi.
Stuðningsmaður Hearts á góðum degi. Nordic Photos / AFP
Það hefur greinilega gengið á ýmsu hjá skoska úrvalsdeildarfélaginu Hearts, sem Eggert Gunnþór Jónsson leikur með, síðustu árin miðað við yfirlýsinguna sem birtist á heimasíðu félagsins.

Yfirlýsingin er frá stjórn félagsins en það er í eigu hins Liháíska Vladimir Romanov. Sá þykir ansi skrautlegur sem hefur látið ýmislegt misjafnt frá sér fara undanfarin ár. Nú beinir hann spjótum sínum að skoskum knattsyprnuyfirvöldum, fjölmiðlum og umboðsmanninnum Gary Mackay sem hefur áður gagnrýnt Romanov opinberlega.

Það er þó ekki sagt berum orðum. Í yfirlýsingunni er fullyrt að ýmis utanaðkomandi öfl hafi reynt að hafa áhrif á starfssemi félagsins og frammistöðu liðsins á knattspyrnuvellinum.

„Hearts berst fyrir því á hverju einasta ári að vera í einu af efstu þremur sætum skosku úrvalsdeildarinnar. En jafnvel á síðasta tímabili var engu líkara að í síðustu tólf leikjunum hafi liðinu verið skipt út fyrir annað. Hverju var það að kenna? Leikmönnum? Þjálfurum? Eða var mafía þar að verki.“

„Leikmönnum er stolið, leikirnir vondir og hin ýmsu vandamál varðandi lögin. Svo má bæta á því metfjöldi sekta frá skoska knattspyrnusambandinu. Vandamálin eru bara flutt á annað stig,“ sagði í yfirlýsingunni.

„Barátta okkar gegn þessum geðsjúklingum verður erfiðari og erfiðari með hverju árinu. Við stöndum í vegi fyrir þeim og leyfum þeim ekki að stjórna leiknum og fótboltanum á þann máta sem þeir vilja.“

„Það er þess vegna sem þeir grafa undan okkur á hvern þann máta sem þeir geta. Verkefni félagsins er að koma þessum krökkum úr höndum þessara glæpamanna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×