Erlent

Spyr Twitter og Facebook um hjónaband samkynhneigðra

Greg Ball, þingmaður Repúblikana, biður Twitter og Facebook vini sína um hjálp við ákvörðun um lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra.
Greg Ball, þingmaður Repúblikana, biður Twitter og Facebook vini sína um hjálp við ákvörðun um lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra. Mynd/AP
Óákveðinn öldungadeildarþingmaður í New York hefur leitað til Twitter og Facebook til að fá svar við því hvort hann eigi að kjósa með eða á móti lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra í fylkinu, en líklegt þykir að atkvæði hans ákvarði niðurlög frumvarpsins.



Greg Ball, þingmaður Repúblikanaflokksins, spurði 3.400 Facebook vini sína og þá 2.200 sem eru skráðir fylgjendur Twitter síðu hans hvað þeir myndu gera í hans sporum en spurningin, sem hann lagði fyrir síðastliðinn föstudag, hefur hinsvegar fengið ólík viðbrögð eftir miðlum.



Á Twitter hafa viðbrögðin verið mjög afgerandi, þar sem flestir notendur svara því að þeir vilji leyfa hjónaband samkynhneigðra, en notendur Facebook virðast hins vegar vera á báðum áttum, þar sem jafnt er kosið með og á móti.




Bréf og símtöl hafa líka hrúgast inn á skrifstofu þingmannsins, en þar virðast andstæðingar hjónabands samkynhneigðra hafa vinninginn yfir stuðningsmenn þar sem skiptingin er sögð vera um 60% á móti 40%.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×