Innlent

Akstur Strætó um jól og áramót

Strætó.
Strætó.
Breytingar verða á akstri Strætó bs. um jól og áramót, eins og jafnan á stórhátíðum. Á Þorláksmessu, föstudaginn 23. desember, verður ekið samkvæmt hefðbundinni áætlun á virkum degi.

Á aðfangadag, laugardaginn 24. desember, verður ekið eins og á laugardegi til kl. u.þ.b. 14, en þá hætta vagnarnir akstri. Hvenær það verður nákvæmlega fer eftir staðsetningu endastöðva, en nánari upplýsingar má finna í leiðabók og á leiðarvísi á www.strætó.is. Á jóladag, sunnudaginn 25. desember, verður enginn akstur. Á annan í jólum, mánudaginn 26. desember, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.

Milli jóla og nýárs verður akstur með hefðbundnum hætti, en á gamlársdag, laugardaginn 31. desember, verður ekið eins og á laugardegi til kl. u.þ.b. 14, en þá hætta vagnarnir akstri. Hvenær það verður nákvæmlega fer eftir staðsetningu endastöðva, en nánari upplýsingar má finna í leiðabók og á leiðarvísi á www.strætó.is. Á nýársdag, sunnudaginn 1. janúar, verður enginn akstur, en frá og með 2. janúar verður akstur með hefðbundnum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×