Sex skólar fá ný nöfn 14. desember 2011 17:00
Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum í dag nöfn á sex nýja sameinaða leikskóla og grunnskóla; Kelduskóla, Vættaskóla, Ártúnsskóla, Háaleitisskóla, Langholt og Miðborg. Nafnasamkeppni meðal foreldra, starfsfólks og barna fór fram í öllum skólunum sem fengið hafa nýtt nafn. Sameinaður leikskóli Holtaborgar og Sunnuborgar fær nafnið Langholt en tæplega tvö hundruð tillögur bárust um nýtt nafn á skólann. Nafn nýja leikskólans dregur nafn af bænum Syðra-Langholti sem stóð þar nærri sem Langholtskirkja var reist, en leikskólinn er einmitt þar í holtinu. Sameinaður leikskóli Barónsborgar, Lindarborgar og Njálsborgar fær nafnið Miðborg sem þykir lýsandi fyrir staðsetninguna í hjarta borgarinnar. Sameinaður leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili í Ártúnsholti fær nafnið Ártúnsskóli líkt og grunnskólinn hét áður með þeim rökum að nafnið byggi á sögu skólans og tengi hann hverfinu. Sameinaður grunnskóli Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskóla fær nafnið Háaleitisskóli og dregur nafn af hverfinu sem báðir skólarnir eru í. Sameinaður grunnskóli Borgaskóla og Engjaskóla fær nafnið Vættaskóli, enda stendur hann í næsta nágrenni við hinar friðlýstu Vættaborgir í næsta nágrenni skólanna. Þá fylgir nýju nafni ósk um að allar góðar vættir vaki yfir starfi hins sameinaða skóla. Starfsstöðvarnar tvær munu ganga undir nöfnunum Borgir og Engi. Sameinaður Korpu- og Víkurskóli fær nafnið Kelduskóli og dregur nafn af örnefnum í næsta nágrenni og einnig vísar það til uppsprettu visku og þekkingar. Starfstöðvarnar tvær munu ganga undir nöfnunum Vík og Korpa.
Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira