Talsmaður neytenda býður fram aðstoð við hópmálssókn Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 14. desember 2011 19:00
Talsmaður neytenda telur að fólk með lánsveð gæti fengið því hnekkt fyrir dómi að það uppfylli ekki skilyrði 110 prósenta leiðarinnar. Hann býður fram krafta sína við að aðstoða lögmenn og þennan hóp til að fara í hópmálsókn. Fréttastofa ræddi við liðlega sjötugan föður í gær sem er afar ósáttur við að sonur hans fái ekki skuldabyrði sína lækkaða niður í 110% vegna þess að hann fékk lánað veð í íbúð foreldra sinna. Faðirinn kærði niðurstöðu Arionbanka til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki og krafðist þess að bankinn yrði skikkaður til að flytja veðið af íbúð foreldranna á efri hæðinni - niður í kjallaraíbúð sonarins, svo hann uppfyllti 110% leiðina. Kröfum hans var hafnað - og beiðni um endurupptöku málsins var síðan hafnað í vikunni. Faðirinn kvaðst vilja fá þessu ranglæti hnekkt fyrir dómstólum. Fréttastofa ræddi við talsmann neytenda í dag til að kanna hvort lagagrundvöllur væri fyrir slíkri málsókn. „Já það er ekki útilokað að þau geti beitt fyrir sig 36. grein samningalaganna," segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. „Þar er ákvæði sem að heimilar að víkja til hliðar ósanngjörnum samningsskilmálum meðal annars vegna atvika sem síðar komu til," útskýrir Gísli svo. Gísli segir að túlka megi ákvörðun stjórnvalda og lánastofnana um að fara í 110% leiðina, sem atvik sem síðar kom til. „þá er ekki útilokað að menn geti reynt nýtt úrræði og stofnað hópmálsóknarfélag til þess að fara saman í mál, til þess að hver og einn þurfi ekki fara í mál, heldur geti þeir með aðstoð lögmanns stofnað félag og gert þetta," segir hann og bætir við að hann sé tilbúinn að aðstoða við slíka málssókn sé eftir því leitað.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fleiri fréttir Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Sjá meira