Vill sérmerkja barnaefni sem inniheldur auglýsingar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 15. desember 2011 19:00
Talsmaður neytenda vill að sérstakar merkingar séu á mynddiskum fyrir börn sem innihalda auglýsingar. Framleiðendur barnaefnis segja algengt að auglýsingar séu inn í sjálfu efninu, án þess sé ekki hægt að framleiða slíkt efni. Umboðsmanni barna hafa borist ábendingar vegna auglýsinga í Söngvaborgunum, sem eru mynddiskar ætlaðir börnum. Á diski sem nýlega var gefinn út má sjá auglýsingar frá Íslandsbanka og Mjólkursamsölunni bæði áður en barnaefnið hefst og á meðan það er í sýningu. Til að mynda má sjá Georg sparibauk Íslandsbanka og ýmsar vörur frá Mjólkursamsölunni. Þær María Björk Sverrisdóttir og Sigríður Beinteinsdóttir framleiða Söngvaborgina. „Í okkar tilviki þá gætum við ekki gert Söngvaborgina nema að hafa með okkur samstarfsaðila. Það er bara ekki hægt en hvort það sé eðlilegt eða óeðlilegt bara í okkar tilfelli þá bara þurfum við þess til að geta gert þetta vandaða barnaefni," segir söngkona Sigríður Beinteinsdóttir. Talsmaður neytenda og umboðsmaður barna gáfu árið 2009 út sérstakar reglur þar sem tekið er á auglýsingum fyrir börn. Endurskoða á þessar reglur eftir áramótin og vill talsmaður neytenda að sérstakar merkingar verði settar á mynddiska með barnaefni þar sem bent er á ef að diskurinn inniheldur auglýsingar. „Það má segja að þetta sé ákveðin neytendavernd að láta vita af því að með í kaupunum fylgi óumbeðnar auglýsingar sem að ekki er hægt að spóla yfir. Það er ekkert víst að allir foreldrar vilji það sumir vilja það kannski, aðrir vilja það ekki, foreldrar eiga að ráða hvernig umhverfi börnin eru að alast upp í og þar á meðal hversu markaðsvætt það er," segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. Ekki er hægt að spóla yfir auglýsingarnar á nýjustu Söngvaborginni. Gísli segir auglýsingar inni í sjálfu barnaefninu alls ekki eiga að sjást. „Það er auglýsing sem að kallast vöruinnsetning og hún er alltaf óheimil í barnaefni samkvæmt okkar leiðbeiningarreglum. Ef þetta væri fjölmiðill þá væri þetta líka brot á fjölmiðlalögum," bætir Gísli við. Þær María Björk og Sigríður Beinteins segjast ómögulegt að sleppa auglýsingum inni í sjálfu efninu og hafa þær einungis fyrir fram og aftan það. Þær velji hins vegar þær auglýsingar sem sjást vel, til að mynda með hollustu og hreyfingu í huga. „Það er kannski svolítið erfitt að gera það þegar þú ert með samstarfsaðila sem að eru kannski að láta einhverja aura af höndum í þetta. Þá er svolítið erfitt að einskorða við bara auglýsingar fyrir framan því oft á tíðum getur þú spólað yfir auglýsingarnar og annað. Þannig að við höfum bara ekki getað gert það örðuvísi en á þenna hátt en við höfum gert," segir Sigríður. Og þá segja þær auglýsingar inni í barnaefni mjög algengar. „Þetta er inni í öllu barnaefni sem að ég hef séð, hvort sem það er íslenskt eða erlent," segir María Björk að lokum.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Brenndu rangt lík Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Fleiri fréttir Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Sjá meira