Ætla ekki að víkja sæti á meðan það er réttað yfir þeim 17. desember 2011 18:30
Hvorki Gunnar Birgisson né Ómar Stefánsson hafa íhugað að víkja sæti úr bæjarstjórn Kópavogs á meðan tekist er á um meint brot þeirra í starfi fyrir dómstólum. Aðrir bæjarfulltrúar segja ákvörðun um að víkja algjörlega í þeirra höndum. Gunnar Birgisson var stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs þegar meint brot áttu sér stað, en hann er ásamt Ómari Stefánssyni annar tveggja stjórnarmanna sem enn situr í bæjarstjórn eftir að ákæra var gefin út á hendur fimm þeirra. Lánveitingar sjóðsins til sveitarfélagsins námu allt að tuttugu prósentum eigna hans, en leyfilegt hámark samkvæmt lögum er helmingi minna. Gunnar segir stjórnina hafa lagt peningana í bæjarsjóð til að koma þeim í skjól á viðsjárverðum tímum, en bæjarsjóður ábyrgist hvort eð er allar skuldir sjóðsins. Fréttastofa ræddi við fulltrúa allra flokka í bæjarstjórnarmeirihluta Kópavogs, en enginn þeirra hugðist þrýsta á um að þeir Gunnar og Ómar segðu af sér; það þyrftu þeir sjálfir að eiga við sig, samvisku sína og kjósendur. Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrúi lista Kópavogsbúa, sagðist þó telja eðlilegt að opinberar persónur sem ekki eru óumdeildar í sínum störfum stígi til hliðar á meðan mál af þessum toga eru til lykta leidd. Ómar Stefánsson vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa hafði samband í dag, að öðru leyti en því að hann hefði ekki íhugað að víkja sæti í bæjarstjórn á meðan málið er rekið fyrir dómstólum.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira