Innlent

Dorrit kveikir á Kringlutrénu

Kveikt verður á jólatré Kringlunnar við hátíðlega athöfn í dag klukkan fimm. Forsetafrúin Dorrit Moussaieff mun tendra ljósin og við sama tækifæri hefst formlega góðgerðarsöfnun á jólapökkum undir jólatréð.

Í tilkynningu frá Kringlunni segir að Sigga Beinteins og Páll Óskar ásamt barnakór muni skemmta auk þess sem jólasveinar mæta á staðinn og heilsa upp á börnin.

„Jólapakkasöfnun Kringlunnar í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands fyrir börn er árviss viðburður á aðventunni. Landsmenn allir eru hvattir til að setja pakka undir jólatré Kringlunnar sem staðsett er á fyrstu hæð hússins," segir einnig.

„Íslendingar hafa tekið þessari söfnun afar vel og í fyrra gáfu viðskiptavinir Kringlunnar yfir 5000 gjafir í söfnunina. Þessum gjöfum er deilt út af Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálpinni til fjölskyldna sem hafa úr litlu að moða fyrir jólin. Starfsfólk Mæðrastyrksnefndar og Fjölskylduhjálparinnar metur þörfina mjög mikla og á mörgum heimilum gera þessar gjafir gæfumuninn á jólahátíðinni," segir Sigurjón Örn Þórsson framkvæmdastjóri Kringlunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×