Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna kynntar 1. desember 2011 17:45
Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna voru tilkynnt í dag. Athöfnin fór fram í Listasafni Íslands og var tilnefnt í tveimur flokkum, flokki fagurbókmennta og í flokki fræðibóka og rita almenns efnis og eru 5 bækur tilnefndar í hvorum flokki. Verðlaunaupphæðin fyrir hvorn flokk er nú kr. 1.000.000. Það verður hart barist í flokki fagurbókmennta í ár í ár. Meðal annars sögðu gagnrýnendur Kiljunnar, Páll Baldvin Baldvinsson, og Kolbrún Bergþórsdóttir, að bókajólin í ár væru þau sterkustu í áraraðir. Hér fyrir neðan má svo lesa tilnefningarnar: Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis: Ármann Jakobsson og Þórður Ingi Guðjónsson Morkinskinna I og II bindi Útgefandi: Hið íslenzka fornritafélag Inga Elsa Bergþórsdóttir og Gísli Egill Hrafnsson Góður matur, gott líf – í takt við árstíðirnar Útgefandi: Vaka-Helgafell Jón Yngvi Jóhannsson Landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar Útgefandi: Mál og menning Páll Björnsson Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar Útgefandi: Sögufélag Sigríður Víðis Jónsdóttir Ríkisfang: Ekkert - Flóttinn frá Írak á Akranes Útgefandi: Mál og menning Dómnefnd skipa: Þorgerður Einarsdóttir, Prófessor við Háskóla Íslands – Formaður Jón Ólafsson, Prófessor við Háskólann á Bifröst Auður Styrkársdóttir, Forstöðukona Kvennasögusafns Íslands Eftirfarandi bækur eru tilnefndar í flokki fagurbókmennta Guðrún Eva Mínervudóttir Allt með kossi vekur Útgefandi: JPV útgáfa Hallgrímur Helgason Konan við 1000° Útgefandi: JPV útgáfa Jón Kalmann Stefánsson Hjarta mannsins Útgefandi: Bjartur Oddný Eir Ævarsdóttir Jarðnæði Útgefandi: Bjartur Steinunn Sigurðardóttir jójó Útgefandi: Bjartur Dómnefnd skipa: Árni Matthíasson – Formaður Viðar Eggertsson Þorgerður Elín Sigurðardóttir Formenn dómnefndanna tveggja munu velja einn verðlaunahafa úr báðum flokkum ásamt forsetaskipuðum formanni lokadómnefndar. Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 verða afhent um mánaðarmótin janúar-febrúar á komandi ári af Forseta Íslands á Bessastöðum. Tilnefnt til Íslensku þýðingaverðlaunanna 2011 Samhliða tilnefningum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna er tilkynnt um tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunna. Dómnefnd á vegum Bandalags þýðenda og túlka tilkynnt um þær fimm þýðingar sem þykja skara framúr útgáfuárið 2011. Bandalag þýðenda og túlka stendur fyrir Íslensku þýðingaverðlaununum og veitir Forseti Íslands þau á degi bókarinnar 23. apríl ár hvert á Gljúfrasteini. Bakhjarlar verðlaunanna eru Rithöfundasamband Íslands og Félag íslenskra bókaútgefenda. Eftirfarandi bækur eru tilnefndar til Íslensku þýðingaverðlaunanna 2011: Andarsláttur eftir Hertu Müller. Þýðandi: Bjarni Jónsson Útgefandi: Ormstunga Fásinna eftir Horacio Castellanos Moya. Þýðandi: Hermann Stefánsson Útgefandi: Bjartur Regnskógabeltið raunamædda eftir Claude Lévi-Strauss. Þýðandi: Pétur Gunnarsson Útgefandi: JPV útgáfa Reisubók Gúllívers eftir Jonathan Swift. Þýðandi: Jón St. Kristjánsson Útgefandi: Mál og menning Tunglið braust inn í húsið. Ljóð eftir marga höfunda. Þýðandi: Gyrðir Elíasson Útgefandi: Uppheimar Íslensku bókmenntaverðlaunin Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóðskáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin fyrir bókina Yfir heiðan morgun. Verðlaunaféð var ein milljón króna. Árið eftir var tilhögun verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skiptust í tvo flokka, flokk skáldverka og flokk fræðibóka/bóka almenns efnis og hefur verið svo síðan. Tilnefnt er í upphafi desember hver ár og verðlaunin síðan veitt síðla janúar eða í upphafi febrúar. Óháðar tilnefninganefndir, skipaðar þremur dómbærum fulltrúum, velja þær fimm bækur í hvorum flokknum sem helst þykja skara fram úr. Lokaval er í höndum formanna nefndanna tveggja og forsetaskipaðs dómnefndarformanns og velja þeir tvær bækur úr sitt hvorum flokki sem hljóta verðlaunin. Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Allir sem gefa út bækur á Íslandi geta lagt fram bækur til verðlaunanna, hvort sem þeir eru í Félagi bókaútgefenda eða ekki, og greiða fyrir það hóflegt gjald. Verðlaunaupphæðin var kr. 750.000 fyrir hvorn verðlaunahafa en hefur nú verið hækkuð í eina milljón króna. Íslensku bómenntaverðlaunin 2010 hlutu Gerður Kristný fyrir ljóðabókina Blóðhófni og Helgi Hallgrímsson fyrir grundvallarverkið Sveppabókin.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira