4,3 milljarða mínus - meðal annars vegna lækkandi álverðs 1. desember 2011 17:49
Afkoma Reykjavíkurborgar var sjö milljörðum undir áætlun fyrstu níu mánuði ársins samkvæmt níu mánaða uppgjör Reykjavíkurborgar sem var lagt fram í borgarráði í dag. Ástæðan er aðallega lækkandi álverð. Þar kemur fram að rekstrarniðurstaða samstæðu, A og B hluta, var neikvæð um 4,3 milljarða en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 2,9 milljarða. Viðsnúninginn er einkum að finna í fjármagnsliðnum sem var neikvæður um 19,9 milljarða vegna gengisáhrifa og lækkandi álverðs en áætlun gerði ráð fyrir 4,5 milljarða fjármagnskostnaði. Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði var hins vegar jákvæð sem nemur 12,9 milljörðum sem er um 4,2 milljörðum betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Skýrist þetta af hærri útsvarstekjum og að gjaldskrárhækkanir OR skila einnig tekjuaukningu í samræmi við aðgerðaráætlun sem samþykkt var í mars sl. Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam 20,4 milljörðum sem eru 5,2 milljörðum umfram fjárhagsáætlun og stendur það vel undir afborgunum langtímalána. Handbært fé frá rekstri nam 22,4 milljörðum eða 8,3 milljörðum umfram fjárhagsáætlun. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1,4 milljarða en áætlanir gerðu ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 675 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því talsvert betri en gert var ráð fyrir, sem nemur 2,1 milljarði, þrátt fyrir að fjármagnskostnaður sé mun hærri, vegna verðlagshækkana umfram forsendur fjárhagsáætlunar. A-hluti Reykjavíkurborgar sýnir mikinn fjárhagslegan styrk hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða annarra hefðbundinna kennitalna, lausafjárstaða er sterk og uppgjörið ber með sér gott greiðsluhæfi. Hins vegar sýnir uppgjörið að rekstur samstæðunnar er mjög háður sveiflum á álverði og gengi vegna mikilla skulda Orkuveitu Reykjavíkur.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Sjá meira