Þúsundir fjármögnunarleigusamninga í uppnámi Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 1. desember 2011 19:00
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að fjármögnunarleigusamningur sem fyrirtækið gerði við Lýsingu hafi verið ólöglegur. Þúsundir sambærilegra samninga eru í uppnámi vegna dómsins en stjórnarformaður Lýsingar segir að fyrirtækið fari ekki í þrot verði þetta niðurstaða Hæstaréttar. Fyrirtækið Smákranar ehf. stefndi Lýsingu vegna fjármögnunarleigusamnings og var það niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í dag að samningurinn væri í raun lánssamningur sem fæli í sér óheimila gengistryggingu og þarf því Lýsing að greiða Smákrönum rúma milljón króna og tvær milljónir í málskostnað. „Niðurstaðan í þessu máli er auðvitað dæmi um það hvernig lítil þúfa getur velt þungu hlassi, smákranar er lítið fjölskyldufyrirtæki sem hefur núna komið því til leiðar að fallinn er dómur sem mun hafa bein áhrif á fjárhagstöðu hundruði íslenskra fyrirtækja," segir Einar Hugi Bjarnason, héraðsdómslögmaður Smákrana ehf. Lýsing hefur ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar og segir Einar að fyrirtækið ætti ekki að senda út greiðsluseðla fyrren endanleg niðurstaða fæst. Í samtali við fréttastofu í dag sagði hins vegar stjórnarformaður Lýsingar, Magnús Scheving Thorsteinsson, að dómurinn muni ekki hafa áhrif á starfsemi Lýsingar og greiðsluseðlar verði áfram sendir út. Athygli vekur að í ársreikningi Lýsingar frá 2010 kemur fram að fari svo að gengistrygging fjármögnunarleigusamninga verði dæmd ólögmæt megi gera ráð fyrir að það hafi neikvæð áhrif á rekstur og efnahag félagsins og óvissa kann því að verða um rekstrarhæfi þess. Magnús segir að vissulega myndi það þýða mikið högg á rekstur félagsins ef Hæstiréttur kemst að sömu niðurstöðu. Hins vegar sé eiginfjárstaða Lýsingar mjög sterk og jafnvel þó færi á versta veg muni eigið fé haldast jákvætt og gjaldþrot sé ekki inni í myndinni. Um 6500 sambærilegir samningar eru í óvissu vegna dómsins og ljóst að milljarðar eru í húfi.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira