Byggt á Hólmsheiði og fé veitt á Hraunið 3. desember 2011 11:58
Ákveðið hefur verið að veita fé til byggingar nýs fangelsis á Hólmsheiði, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Að auki er rætt um að setja sérstaka fjárupphæð til nauðsynlegra endurbóta á fangelsinu á Litla-Hrauni. Óvissa kom upp um áform innanríkisráðherra varðandi fangelsisbyggingu þegar fjárlaganefnd tók fjárheimild til þess úr fjárlögum. Björgvin G. Sigurðsson, fulltrúi í nefndinni, hefur mjög talað fyrir því að áhersla eigi frekar að vera á uppbyggingu á Litla-Hrauni. Heimildir Fréttablaðsins herma að sátt hafi náðst í málinu í gær. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir málið ekki frágengið, en hann sé mjög bjartsýnn á að málið nái fram að ganga í samræmi við óskir fagaðila, en þeir hafa mælt með fangelsi á Hólmsheiði. "Ég hef átt góðar samræður við fulltrúa í fjárlaganefnd þingsins og ráðuneytismenn og fulltrúar fangelsismálastofnunar undanfarna daga og ég er mjög bjartsýnn á að málið nái farsællega fram að ganga." Páll Winkel fangelsismálastjóri segist bjartsýnn á að málið leysist með farsælum hætti og hann hafi átt nokkra fundi með nefndum Alþingis þar sem gögnum hafi verið komið á framfæri og hreinskiptin umræða átt sér stað. Þá sendi Fangavarðafélag íslands frá sér yfirlýsingu í gær þar sem lýst er yfir heilshugar stuðningi við stefnu Fangelsismálastofnunar um uppbyggingu fangelsiskerfisins, þar með nýtt fangelsi á Hólmsheiði." Það er komið nóg af töfum á þessu brýna verkefni og er varað við því að Alþingi leggi stein í götu þessa framfaramáls eins og ráða má af fréttum," segir í yfirlýsingunni. „Við fylgjumst með framvindunni og munum ekki taka því þegjandi ef þessi áform verða stöðvuð eina ferðina enn. Að sjálfsögðu viljum við líka áframhaldandi uppbyggingu á Litla-Hrauni á komandi árum. En þetta eru ekki valkostir. Hólmsheiðina strax eins og lagt hefur verið upp með, síðan/og jafnframt uppbyggingu á Litla-Hrauni," segir jafnframt í yfirlýsingunni.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira