Innlent

Stefnir í metsumar á Ísafirði 2013

Mynd/Vilmundur
Það stefnir í algjört metár í komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar sumarið 2013 en stærsta félag heimsins í þeim bransanum, Carnival, hefur ákveðið að bæta Ísafirði inns sem viðkomustað það sumarið. Frá þessu er greint á vestfirska miðlinum Bæjarins Besta í dag. Carnival hefur lagt inn pöntun fyrir sex skip og þar á meðal eru hin frægu fley Queen Victoria og Queen Elizabeth.

Þá segir ennfremur að Aida Cruises  muni einnig hefja siglingar til bæjarins sama sumar en félagið mun vera á meðal þeirra stærstu í í Evrópu. „Þá hefur Holland America Line skipafélagið, sem rekur meðal annars skipin Maasdam og Prinsendam, ákveðið að hefja aftur siglingar til Ísafjarðar sumarið 2013 eftir nokkurra ára hlé.

Þessu til viðbótar hafa reglulegir viðskipavinir Ísafjarðarhafnar þegar byrjað að bóka komur sínar árið 2013,“ segir í Bæjarins Besta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×