Lyfjanotkun aldraðra eykst Lillý Valgerður Pétursdóttir. skrifar 4. desember 2011 17:50
Langflestir eða um níutíu prósent aldraðra sem búa heima taka einhver lyf að staðaldri og sumir fleiri en tíu lyf. Öldrunarlæknir segir lyfjanotkun hafa aukist hjá eldra fólki samhliða auknum lífslíkum. Mikilvægt sé að vera á varðbergi þegar öldruðum eru gefin lyf þar sem aukaverkanir lyfjanna geti haft mikil áhrif. Í nýjasta hefti Læknablaðsins er sagt frá rannsókn á lyfjanotkun eldri Íslendinga sem búa heima. Niðurstöðurnar sýna að um níutíu prósent þeirra sem eru sextíu og fimm ára og eldri nota einhver lyf að staðaldri en þeir sem rannsakaðir voru búa allir á Norðurlandi. Aðeins 11% nota engin lyf, 48% nota eitt til fjögur lyf, 37% fimm til níu lyf og 4% tíu lyf eða fleiri. Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum, segir lyfjanotkun hafa aukist hjá eldra fólki samhliða auknum lífslíkum. ,, Fólk er að veikjast núna á svipuðum tíma og áður en lifa mikið lengur, reyndar að lifa betur en áður. Stór hluti af lyfjameðferð hjá öldruðum miðar við það að fyrirbyggja sjúkdómseinkenni og fötlun", segir Pálmi. Pálmi segir algengt að ef fólk þarf á lyfjum að halda þurfi það fleiri en eitt lyf. ,, Ef við tökum til dæmis fólk með hjarta- og æðasjúkdóma þá er fljótlega komin upp sú staða að fjögur kannski til sex lyf. Við háþrýstingi, við hækkaðri blóðfitu, við blóðþurðareinkennum frá hjarta og ef að fólk er síðan með gáttatif þá kemur blóðþynning til álita", segir Pálmi. Pálmi segir mikilvægt að vera á varðbergi þegar öldruðum eru gefin lyf þar sem aukaverkanir lyfjanna geti haft mikil áhrif. Það komi oft fyrir að leggja þurfi fólk inn á sjúkrahús vegna aukaverkana. ,, Lyfjameðferðin verður vissulega mun meira krefjandi hjá öldruðum. Þannig að það eykur líkurnar á aukaverkunum og er því ástæða fyrir því að við þurfum að vera á sérstöku varðbergi þegar við meðhöndlum eldra fólk", segir Pálmi. Búast má við að lyfjanotkun eldra fólks haldi áfram að aukast. ,,Við erum bara að horfa á nýtt æviskeið sem var ekki til fyrir 100 árum. Fólk er að lifa hér kannski 25 árum lengur heldur en fyrir 100 árum síðan. Því fylgja aldurstengdir sjúkdómar og það hafa orðið gríðarlegar framfarir í læknisfræði og margt af því er einmitt að nýtast ekki bara til lengra lífs heldur til betri lífsgæða og það er aðalatriðið", segir Pálmi.
Mest lesið Sinueldur við Elliðavatn Innlent Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Erlent Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Innlent Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Innlent Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Innlent „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent Fleiri fréttir Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Líf bar sigur úr býtum Intuens hafi nýtt sér óttann og kvíðann sem krabbamein valdi til að græða Sinueldur við Elliðavatn „Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Rúta full af ferðamönnum fór út af veginum Vísar gagnrýni verkalýðsleiðtoga til föðurhúsanna Býst við að samningar náist fljótlega og auglýsir eftir starfsfólki Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Leitað logandi ljósi eftir nýjum kirkjugarði á Selfossi Sjálfsafgreiðslukassar og aukin sjálfvirkni auki vandann Sinueldar, sjúklingar og skafrenningur Reykur sást á flugvallarsvæðinu Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Þrír sinueldar á innan við sólarhring Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Sjá meira
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent