Dagbókarbrot Páls Óskars: Von og vonleysi 5. desember 2011 15:30 Enginn veit að drengurinn sem Páll Óskar hitti er HIV-jákvæður nema mamma hans og amma, því kemur nafn hans ekki fram.
Dagbókarbrot frá Páli Óskari Hjálmtýssyni í Síerra Leóne munu birtast næstu daga á Vísi, eitt á dag, fram að söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem sýndur verður á föstudag, á degi rauða nefsins. Dagur rauða nefsins verður í opinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi. „Ég fór til Síerra Leóne fyrir UNICEF út af degi rauða nefsins! Á sjúkrahúsi í Freetown, höfuðborginni í landinu, hitti ég 13 ára strák sem var algjört æði. Hann er HIV-jákvæður og smitaðist sennilega við blóðgjöf þegar hann var 5 ára. Það eru ekki til fjármagn á sjúkrahúsinu til að skanna blóð. Honum var vart hugað líf á tímabili, en í dag þiggur hann lyfjagjöf frá UNICEF og honum líður miklu betur. Hann mætir reglulega í tékk á sjúkrahúsið þar sem ég hitti hann. Hann ber það ekki með sér að vera HIV-jákvæður, hann er ekki veikur, gengur í skóla, spilar sinn fótbolta. Hann lifir nánast eðlilegu lífi í dag. En sjúkdómnum fylgir enn mikil skömm í Síerra Leone. Enginn veit að hann er HIV-jákvæður nema mamma hans og amma. Hann þorir ekki að segja bestu vinum sínum frá þessu, af ótta við fordæmingar og útskúfun og því er best að vera ekkert að skrifa nafnið hans beint undir myndina. Hann er mjög skýr í kollinum og hélt yfir mér þrumuræðu um von og vonleysi. Hann þakkar UNICEF fyrir að vera enn á lífi. Hérna erum við saman eftir að hann fékk lyfin sín og hafði kennt mér að syngja uppáhaldslagið sitt! Munum svo öll eftir degi rauða nefsins næsta föstudag: Landssöfnun fyrir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna!“- Páll Óskar
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Metfjöldi gesta tvo daga í röð Innlent Íranir mótmæla á ný Erlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Erlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Fleiri fréttir Það sem tröllunum mistókst gerðu Íslendingar með flugi Þrír sinueldar á innan við sólarhring Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Skellur fyrir Trump „Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Sjá meira