Innlent

Hvetur til þess að börn séu bólusett gegn mislingum

Sóttvarnalæknir hvetur foreldra til þess að láta bólusetja börn sín fyrir mislingum og minnir á að bólusetning er eina ráðið til að koma í veg fyrir mislinga.

Tilmælin eru sökum þess að fréttir hafa borist af mislingafaraldri í Evrópu, en á þessu ári hafa rúmlega 30 þúsund einstaklingar greinst með mislinga.

Um 82% þeirra sem greinst hafa með mislinga voru óbólusettir og flestir voru börn yngri en tíu ára. Í frétt á vef landlæknisembættisins eru foreldrar hvattir til að láta bólusetja börn sín með MMR bóluefninu. Það er notað hér á landi og hefur sýnt sig að vera öruggt og áhrifaríkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×