Íhugar að kæra Pressuna til lögreglunnar vegna myndbirtingar 7. desember 2011 14:30 Pressan.is. „
Ég held að það séu engin fordæmi fyrir því að brotaþolendur í kynferðisafbrotamálum séu myndbirtir," segir Katrín Oddsdóttir lögmaður sem ætlar að kæra fréttamiðilinn Pressuna.is til blaðamannafélags Íslands og lögreglunnar fyrir að myndbirta stúlku sem hefur kært Egil Gillz Einarsson og unnustu fyrir nauðgun. Myndin sem um ræðir var af átján ára stúlku sem var að kyssa unnustu Egils og var búið að svartan borða fyrir augun á meintum brotaþola svo hún þekktist ekki. „Það er ótrúlegt að sjá fjölmiðla gera svona lagað," segir Katrín sem ætlar meðal annars að benda lögreglu á mögulegt brot forsvarsmanna Pressunnar gegn 229. grein almennra hegningarlaga. Þar segir orðrétt: „Hver, sem skýrir opinberlega frá einkamálefnum annars manns, án þess að nægar ástæður séu fyrir hendi, er réttlæti verknaðinn, skal sæta sektum eða [fangelsi]1) allt að 1 ári." Katrín hyggst svo kæra miðilinn fyrir 3. grein siðareglna Blaðamannafélags Íslands sem hljóðar svo: „Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Hann forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu." Pressan hefur fjarlægt myndin af vefnum að beiðni verjanda hennar. Viðbrögðin við myndbirtingunni hefur vakið miklar deilur, meðal annars á samskiptavefnum Facebook sem og á hinum ýmsu bloggum. Katrín segir umfjöllun fjölmiðla um málið gagnrýnisverða. Hún bendir á að það sé erfitt að vera þolandi í kynferðisafbrotamáli og því verulega íþyngjandi fyrir þá sem ganga í gegnum kæruferlið að þurfa að þola umfjöllun fjölmiðla með svo beinskeyttum hætti. „Þetta er ósmekklegt og ómaklegt," segir Katrín sem segir eðlilegast að fjölmiðlar og almenningur gefi lögreglunni svigrúm tl þess að rannsaka málið. Þess má geta svo að lokum að Pressan hefur beðist afsökunar á birtingu myndarinnar og fjarlægt fréttina af vefnum. Þetta gerðist eftir samtalið við Katrínu og má vera að það breyti málinu að einhverju leyti. Hún segist ætla að skoða þá stöðu sem nú er komin upp þegar Vísir bar það undir hana. Efnislega standi sjónarmið hennar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira