Kolka í aðgerð 7. desember 2011 20:00
Kolka, fimm mánaða gömul tík, þjáðist vegna misvaxtar á beinum í framfæti og gekkst undir aðgerð á Dýraspítalanum í Víðidal. Anton Brink ljósmyndari fylgdi henni þangað. „Svona lagað er fremur sjaldgæft og oft mjög erfitt viðureignar," segir Ólöf Loftsdóttir, dýralæknir á Dýraspítalanum í Víðdal. Ólöf er ein þeirra sem gerði aðgerð á Kolku, fimm mánaða gamalli border collie-tík, í síðasta mánuði. Ástæða þess að gera þurfti aðgerð á Kolku var misvöxtur á beinum í öðrum framfætinum. Vaxtalína annarrar pípunnar í fætinum lokaðist og þvingaði þannig vöxt hinnar pípunnar, sem sveigðist og byrjaði að afmynda fótinn. Án aðgerðar hefði komið sífellt meiri sveigja á beinið eftir því sem það stækkaði. „Aðgerðin gekk út á að losa um þessa spennu," segir Ólöf. „Við söguðum í sundur pípuna sem var of stutt svo hin pípan geti rétt úr sér. Vonandi hefur tekist að rétta þessa afmyndun á framfætinum, en líklega gengur þetta aldrei alveg til baka. Sennilega á Kolka alltaf eftir að finna eitthvað fyrir þessu." Eigandi Kolku er Þórhildur María Bjarnadóttir, fimmtán ára nemi í Hvassaleitisskóla, sem er mikill dýravinur og útilokar ekki að leggja dýralækningar fyrir sig í framtíðinni. Bergþóra Arnarsdóttir, móðir Þórhildar Maríu, segir dóttur sína ítrekað hafa beðið um hund á heimilið síðustu ár, en sjálf segist Bergþóra ekki sérlega mikil hundamanneskja. „Ég var á leiðinni út í búð eitt kvöldið þegar sá mjög fallegan hund og eigandi hans gaf mér símanúmer hjá fólkinu sem hann fékk hundinn hjá. Daginn eftir skelltum við okkur upp í Hvalfjörð og þá kom þessi litli engill hlaupandi beint í fangið á okkur og knúsaði. Það var ást við fyrstu sýn, því hún Kolka er alveg yndisleg. Eftir aðgerðina líður henni vel þótt hún verði líklega alltaf örlítið hölt, en Kolka bætir það bara upp með öllu öðru," segir Bergþóra.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira