Innlent

Mikil hætta á að ungt fólk með ADHD noti vímugjafa

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gísli Guðjónsson er fyrsti höfundur rannsóknarinnar.
Gísli Guðjónsson er fyrsti höfundur rannsóknarinnar. mynd/ stefán.
Meiri líkur eru á að ungt fólk með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) reyki, noti áfengi og ólögleg fíkniefni en fólk sem ekki hefur ADHD. Þetta sýna niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar sem unnin var af rannsóknarteymi undir stjórn Gisla Guðjónssonar prófessors í sálfræði við Kings College í Lundúnum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að fólk með ADHD sé með slíkri vímugjafanotkun að reyna að meðhöndla eigið ástand upp á eigin spýtur (e. self medication).

Rannsóknin var birt á vef The Journal of Child Psychology and Psychiatry fyrr í þessum mánuði. Rannsakendur könnuðu tengslin milli sígarettureykinga, áfengisneyslu og ólöglegrar lyfjanotkunar tæplega 11 þúsund unglinga á aldrinum 14-16 ára á Íslandi í fyrra. Í þessum hópi voru 5,4% greindir með einkenni ADHD.

Þegar tekið hafði verið til þátta á borð við kvíða, þunglyndi og andfélagsleg viðhorf, voru tengsl sígarettureykinga, áfengisneyslu og neyslu ólöglegra vímuefna við ADHD mjög sterk. Þetta bendir til þess að ADHD hafi eitt og sér mikil áhrif á neyslu vímuefna. Að auki sýndu niðurstöður að 25% þeirra sem voru með ADHD notuðu róandi lyf en einungis 7% þeirra sem ekki höfðu einkenni ADHD.

„Notkun róandi lyfja var mjög sláandi. Við komumst einnig að því að efnunum sem fólk notar fjölgar eftir því sem ADHD einkennin verða alvarlegri. Það bendir til þess að fólk sé að reyna að hafa áhrif á ADHD einkennin með vímuefnaneyslunni," segir Gísli Guðjónsson á vef Kings College.

Á vef Kings College segir Gísli Guðjónsson að ungt fólk með ADHD sé líklegra til þess að prófa fleiri tegundir af vímugjöfum en aðrir. Það auki líkurnar á því að notkunin þróist út í ofnotkun. Fólk þrói þannig með sér áfengis- og fíkniefnasjúkdóma. Því sé afar mikilvægt að veita þessum hópi ungs fólks hjálp strax.

Auk Gísla Guðjónssonar unnu þau Jón Friðrik Sigurðsson, yfirsálfræðingur á Landspítala, Inga Dóra Sigfúsdóttir, professor við HR, og Susan Young, við Kings College, að rannsókninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×