Norður-Írar gerðu Íslandi frábæran greiða og unnu Norðmenn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. nóvember 2011 21:22 Íslenska landsliðið er í góðri stöðu í undankeppninni fyrir EM 2013. Mynd/Daníel
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, hugsar sjálfsagt afar hlýtt til Norður-Írlands í kvöld en liðið vann þá glæsilegan 3-1 sigur á Noregi í undankeppni EM 2013. Noregur er helsti keppinautur Íslands um efsta sæti riðilsins í undankeppninni en Ísland vann Noreg með einmitt sama mun, 3-1, í leik liðanna í haust. Stelpurnar okkar gerðu hins vegar markalaust jafntefli við Belgíu í næsta leik en náðu sér svo aftur á strik með því að vinna Ungverjaland og Norður-Írland á útivelli í síðasta mánuði. Með sigri Norður-Írlands í kvöld aukast líkur Íslands talsvert á sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Svíþjóð sumarið 2013. En þó eru margir leikir eftir í riðlinum og ljóst að í honum eru mörg sterk lið sem geta hrifsað stig hvert af öðru. Sigur Norður-Íra í kvöld þýðir að Ísland, sem er á toppi riðilsins, er með fimm stiga forystu á Belgíu og sex stiga forystu á bæði Noreg og Norður-Írland. Belgar og Norðmenn eiga þó leik til góða og Norður-Írar tvo leiki til góða. Fyrr í dag vann svo Belgía 5-0 sigur á Búlgaríu. Næstu leikir í riðlinum fara fram á miðvikudaginn. Þá mætast Búlgaría og Belgía öðru sinni en Ungverjaland tekur á móti Norður-Írlandi. Ísland mætir næst Belgíu á útivelli þann 4. apríl næstkomandi.
Fótbolti Mest lesið Glódís: „Gríðarlega erfitt að sitja með þá tilfinningu eftir mót“ Sport Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara Fótbolti Dagný: Veit ekkert hvað ég er að fara að gera Fótbolti „Það var köld tuska í andlitið“ Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Vill halda áfram: „Tel mig hafa getuna í það“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Sveindís langbest Fótbolti „Þegar við spilum svona þá uppskerum við yfirleitt“ Fótbolti Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Sveindís: Maður vinnur ekki leiki nema að skora mörk Fótbolti Fleiri fréttir Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara „Þegar við spilum svona þá uppskerum við yfirleitt“ Sveindís: Maður vinnur ekki leiki nema að skora mörk „Það var köld tuska í andlitið“ Dagný: Veit ekkert hvað ég er að fara að gera Uppgjörið: Valur - Flora 3-0 | Valsmenn í góðri stöðu Vill halda áfram: „Tel mig hafa getuna í það“ Einkunnir Íslands: Sveindís langbest Dramatískt jafntefli sendir heimakonur í átta liða úrslit Ítalskur deildarleikur í Ástralíu í febrúar? „Við erum að gera eitthvað rétt“ Þrjár breytingar: Katla fær stórt tækifæri í lokaleik Íslands á EM Uppgjörið: Malisheva - Víkingur 0-1 | Fagleg frammistaða hjá Víkingum Uppgjör: Ísland - Noregur 3-4 | Daufur endir á slöppu ævintýri Myndaveisla: Íslensk yfirtaka í Thun og vonast eftir fyrsta sigrinum Á góðum stað fyrir mikil átök Fjórir eru tveimur leikjum frá því að vinna sjö titla á einu ári Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ EM í dag: Hungur í sigur, þreytandi vörður og næstum stærsta skúbb mótsins „Miklu skemmtilegra að vera í þessari baráttu“ Arsenal eflir miðjuna enn frekar Sex hafa ekkert spilað á EM Sjáðu strákana á N1 mótinu sýna snilli sína Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ajax riftir samningi Jordans Henderson Síðasti séns á að vinna milljónir Missum Hondúras upp fyrir okkur en höldum sama sæti á FIFA listanum Missir af leik á EM vegna höfuðmeiðsla Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Sjá meira