Þorsteinn: Tekinn af lífi fyrir að vera á móti Guðjóni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. nóvember 2011 16:28 Þorsteinn með Robbie Winters. mynd/heimasíða Grindavíkur
Þorsteinn Gunnarsson, fráfarandi formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, er afar ósáttur við þær fullyrðingar núverandi formanns, Jónasar Þórhallssonar, að knattspyrnudeildin hafi tapað 21 milljón króna á rekstrarárinu. Þorsteinn segir í yfirlýsingu, sem hann sendi Vísi, að enn séu tveir mánuðir eftir af rekstrarárinu. Þess utan eigi knattspyrnudeildin útistandandi 8-10 milljónir vegna sölunnar á Jósef Kristni Jósefssyni. Svo á deildin eftir að fá uppgjör frá Lýsi. Hann býst því ekki við að tapið sé meira en 5-7 milljónir króna. "Þessar tölur hjá Jónasi standast ekkert. Það er ekkert hægt að fullyrða svona þegar reikningarnir liggja ekki einu sinni fyrir," segir Þorsteinn ákveðinn. "Ég hef talað við bókarann okkar um þetta og hann er ekki búinn að leggja neinar tölur fyrir aðalfundinn. Hann hafði aldrei heyrt þessar tölur. Það er því mjög óábyrgt að gera þetta eins og þeir gera þetta." Hægt er að sjá yfirlýsingu Þorsteins í heild sinni hér að neðan.Yfirlýsing Þorsteins Gunnarssonar:Það er ábyrgðarleysi að kasta því fram að það sé 21 milljón króna tap á rekstri deildarinnar því það er alrangt. Uppgjörið ársins liggur ekki fyrir. Ég vona að tapið verði ekki meira en á bilinu 5-7 milljónir en það eru enn nokkrir óvissuþættir sem gætu sett strik í reikninginn, til hins verra eða betra.Ég er dapur í bragði yfir því hvernig þessu hefur verið kastað fram, að því er virðist í þeim eina tilgangi að sverta mannorð mitt og taka mig af lífi þar sem ég setti mig upp á móti því að ráða Guðjón Þórðarson sem þjálfara. Ég er búinn að starfa hér af fullum heilindum í þrjú ár fyrir félagið, bæði sem formaður og markmannsþjálfari og þetta eru ekki þær kveðjur sem ég átti von á frá nýjum formanni sem jafnframt var varaformaður í gömlu stjórninni.Enn eru tveir mánuðir eftir af rekstrarárinu og endurskoðaður ársreikningur verður tilbúinn í febrúar og þá kemur endanlega í ljós rekstrarniðurstaða ársins en það er ljóst að reksturinn er erfiður. Framkvæmdastjóri deildarinnar kastaði þessu stórtapi fram á aðalfundinum í vikunni án þess að útskýra frekar og þessa tölu hafði ég ekki heyrt áður. Þegar ég bað um nánari útskýringar kom í ljós að það vantaði ýmislegt inn í þessu jöfnu.Þar er helst að nefna útistandandi kröfu á búlgarska liðið Burgas upp á 8-10 milljónir fyrir Jósef Kristinn Jósefsson sem við seldum í febrúar síðastliðum. Þá vantar lokauppgjör við Lýsi sem kemur í lok ársins og byggir á bónuskerfi fyrir þá lifur sem kemur á land í Grindavík og það stefnir í mjög gott haust. Hér er um nokkrar milljónir króna að ræða.Þá eigum við tvo bíla sem við höfum ekkert að gera við en verðmæti þeirra er 4-5 milljónir. Hefur annar bíllinn verið settur á sölu. Þá höfum við alltaf tekið skorpu í lok árs að sækja meira fé og að sjálfsögðu stendur til að gera það nú og oftar en ekki tekist vel til.Þá höfum við verið í viðræðum við stóran styrktaraðila í haust en við bíðum enn eftir niðurstöðu í því máli en líklega verður það ekki fyrr en á næsta ári. En á þessu sést að það vantar stóra tekjupósta í jöfnuna en helsta óvissan er krafan á búlgarska liðið.Að sögn framkvæmdastjórans miðast 21 milljón við áætlaðan kostnað út árið miðað við að greiða allar skuldir og við gerum upp að fullu við alla leikmenn og starfsmenn en við höfum verið að vinna að því að gera starfslokasamninga við tvo leikmenn þannig að vonandi lækkar þessi tala.Þegar ég tók við formennsku fyrir þremur árum komu í ljós 3-4 milljón króna skuldir sem við höfum ekki vitneskju um. Við réðumst á þær án þess að vera básúna það út um allt og kláruðum og tókst okkur að skila rekstrinum réttum megin við núllið það árið. Í fyrra varð hins vegar 5 milljón króna tap á rekstrinum.Í sumar og haust hef ég lagt áherslu á í stjórninni að stíga á bremsurnar eins og hægt er í útgjöldum. Meðal annars var ég afar ósáttur við að tekin var ákvörðun um það á meðan ég var staddur í sumarfríi í Danmörku, að kaupa tvo bíla fyrir vallarstjóra og framkvæmdastjóra.Það ber að halda því til haga sem rétt er varðandi allt þetta mál. Þessi umræða hefur stórskaðað fótboltann í Grindavík. En ég sagði við stjórnina þegar ég ákvað að stíga til hliðar að ég myndi að sjálfsögðu hjálpa til við að loka þessu ári fjárhagslega enda er mér annt um félagið og þar hef ég átt þrjú frábær ár. Ég mun standa við að þrátt fyrir þessa aðför að mér.Virðingarfyllst,Þorsteinn Gunnarsson
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf McIlroy varði Masters-titilinn Golf „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ Íslenski boltinn „Tilfinningin ólýsanleg að sjá boltann í netinu“ Fótbolti Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Íslenski boltinn Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Fantasy-deild í loftið: „Eins og Kylie Jenner bjóði þér á date og þú neitir því“ „Algjörlega nauðsynlegt að fá framherja“ Sjáðu upphitunarþátt Stúkunnar í heild Besta-spáin 2026: Þurfa að svara fyrir sig Sjá meira