Innlent

Davíð Þór beðinn afsökunar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ritstjórnin hefur beðið Davíð Þór afsökunar.
Ritstjórnin hefur beðið Davíð Þór afsökunar.
Siðanefnd vefsíðunnar Innihald.is hefur komist að þeirri niðurstöðu að María Lilja Þrastardóttir hafi gerst brotleg við siðareglur vefsins þegar hún skrifaði opið bréf til Davíðs Þórs Jónssonar sem birtist á vefnum. Bréfið hefur nú verið tekið úr birtingu.

Eins og kunnugt er hótaði Davíð Þór Maríu Lilju málshöfðun eftir að hún birti bréfið, en dró hana síðan til baka. Hann gerði meðal annars athugasemd við að María Lilja lýsi Davíð Þór sem „gömlum ritstjóra klámbæklings, þar sem líkamar kvenna voru hlutgerðir og settir upp sem söluvara". Einnig gerði hann athugasemd við að María Lilja fullyrti að Davíð Þór reki í grein sinni „upp harmavein til bjargar aumingjans „fórnarlömbum" þessara illu systra". Davíð sendi Innihald.is erindi þar sem hann kvartaði yfir birtingu bréfsins.

Ritstjórn segir að við ákvörðun um birtingu bréfsins hafi orðið misbrestur á gagnrýnum yfirlestri og biður lesendur og aðila málsins afsökunar. Hlutverk ritstjórnar sé að sjá til þess að siðareglum sé fylgt og henni þyki miður að þessi mistök hafi átt sér stað.




Tengdar fréttir

María Lilja ætlar að svara Davíð í hádeginu

„Ég ætla að svara honum um hádegið,“ segir María Lilja Þrastardóttir, sem ritaði harðort bréf til Davíð Þórs Jónssonar, pistlahöfundar Fréttablaðsins, út af grein sem hann skrifaði í blaðið um helgina.

Davíð Þór biður Maríu afsökunar

Guðfræðingurinn og pistlahöfundurinn Davíð Þór Jónsson, hefur beðið Maríu Lilju Þrastardóttur afsökunar á að hafa hótað að stefna henni fyrir meiðyrði. María Lilja svaraði pistli Davíðs, sem var birtur í Fréttablaðinu um helgina, og þótti Davíð illa að sér vegið. Hann gaf henni því þrjá sólarhringa til þess að biðja sig afsökunar á ummælum eins og að hann hefði brenglað viðhorf til kynlífs og hefði ritstýrt klámbækling.

María Lilja svarar Davíð - og þar er enga afsökunarbeiðni að finna

“Það var aldeilis að pennaskríplið mitt strauk þér öfugum, það var þó ekki nema og, á þig voru bornar þungar sakir, ég gerði þér það náttúrlega alveg upp að hafa á nokkurn hátt ”hlutgert” konur í gamla dónablaðinu, sem ég efast ekki um að þú hafir stýrt af mikilli natni og náungakærleik,“ skrifar María Lilja Þrastardóttir í svarpistli sínum á vefnum Innihald.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×